- Advertisement -

Fjórar stuttar fréttir frá Blaðbera

Góð afkoma hjá Festi að undanförnu hefur meðal annars verið nýtt til að greiða hratt upp kaupin á Lyfju á síðasta ári, samkvæmt nýrri greiningu á félaginu, en útlit er fyrir að árleg samlegð vegna samrunans verði talsvert meiri en áður var áætlað.

Ráðamenn og embættismenn í Evrópu eru verulega ósáttir við ætlanir Bandaríkjamanna um að hagnast á frystum sjóðum Rússa í Evrópu og enduruppbyggingu í Úkraínu. Þær ætlanir eru sagðar geta komið niður á tilraunum Evrópumanna til að hjálpa Úkraínumönnum að komast gegnum…

Í ársreikningi segir m.a. að Gangverk hafi áfram unnið að samþættingu rekstrar eftir samrunann við Zaelot, með áherslu á hagræðingu og nýtingu stærðarhagkvæmni.
Sextán ára bandarískur drengur, sem er grunaður um aðild að dauða stjúpsystur sinnar, Önnu Kepner, um borð í skemmtiferðaskipi fyrr í mánuðinum, gæti verið fenginn til að bera vitni í eigin persónu um atvikið jafnvel þó að rannsókn sé ekki enn lokið.

Það helsta í dagbók lögreglu er að átta eru vistaðir í fangaklefum þegar þetta er ritað og 69 mál skráð á tímabilinu. Nokkur heimilisofbeldismál og ökumenn að aka undir áhrifum áfengis eða fíkniefna, sumir sviptir eða án ökuréttinda, á öllum varðsvæðum sem verða ekki tíunduð hér frekar.

Þú gætir haft áhuga á þessum

Tengdar fréttir sem þú gætir haft áhuga á að lesa: