- Advertisement -

Forystusveit Sjálfstæðisflokksins er ein á mælendaská

Alþingi: Formaður, varaformaður og ritari og Þórdís Kolbrún R. Gylfadóttir, fyrrum varaformaður, Sjálfstæðisflokksins eru öll og ein á mælendaskrá, á Alþingi í dag, þegar rætt verður um stjórnarfrumvarp um launavísitala gildi á ellilaun og örorku.

Hvert er málið? „Í stefnuyfirlýsingu ríkisstjórnar Samfylkingar, Viðreisnar og Flokks fólksins frá 21. desember 2024 segir m.a. að ríkisstjórnin muni hækka örorku- og ellilífeyri á hverju ári til samræmis við hækkun launavísitölu en þó aldrei minna en verðlag. Frumvarpið sem hér er lagt fram er í samræmi við framangreint.

Markmið frumvarpsins er að styrkja stöðu þeirra sem fá greiðslur úr almannatryggingum með því að tryggja að lífeyrisgreiðslur fylgi þróun launavísitölu í stað þess að taka mið af launaþróun, líkt og gildandi lög gera ráð fyrir, sem í einhverjum tilvikum kann að hafa leitt til lakari kjara fyrir þessa hópa en ef miðað hefði verið við launavísitölu. Þannig þykir dregið úr hættu á að greiðslur almannatrygginga dragist aftur úr í samanburði við almenna þróun lífskjara.“


Tengdar fréttir sem þú gætir haft áhuga á að lesa: