- Advertisement -

Framsókn: Þórarinn Ingi vill 2. sæti í Norðausturkjördæmi

Þórarinn Ingi Pétursson skrifar:

„Næstkomandi haust kjósum við fulltrúa til setu á Alþingi Íslendinga, til að móta samfélagið. Ég hef notið þeirra gæða og hlotið þá reynslu að sitja á Alþingi undanfarin misseri. Það er dýrmæt reynsla og tækifæri til að koma áherslumálum samvinnu og félagshyggju á framfæri. Saman förum við áfram veginn.

Framsóknarfólk velur fulltrúa í póstkosningu til að skipa efstu sæti framboðslista Framsóknarflokksins í Norðausturkjördæmi. Ég sækist eftir 2. sæti á framboðslista flokksins í kjördæminu. Málefni bænda eru mér hugleikin en ég sat í fimm ár sem formaður sauðfjárbænda og hef tekið virkan þátt í félagsmálum bænda. Starfsumgjörð landbúnaðarins er mér hugleikin og framtíðar horfur íslensks landbúnaðar. Í landbúnaði felast ótal tækifæri til eflingar og nýsköpunar. Hagur hinna ólíku landsbyggða eru nátengd dreifðum byggðum og því þarf að efla og styrkja byggð á hverjum stað með áherslu á nýtingu þess sem landið og hafið gefur með sjálfbærum hætti. Nám óháð búsetu, samgöngur og trygg fjarskipti treysta byggðirnar. Það er forsenda byggðar að unga fólkið sjái tækifærin hvar sem þau eru.

Viðspyrna samfélagsins felst í að nýta þau tækifæri sem landið hefur upp á bjóða með skynsömum hætti.

Umfram allt er ég samvinnumaður. Þess vegna aðhyllist ég gildi Framsóknarflokksins um samvinnu, félagshyggju og skynsamlega nálgun á hin ólíku viðfagnsefni samfélags á hverjum tíma með heildarhagsmuni í huga umfram sérhagsmuni.

Því leita ég til ykkar eftir stuðningi.

Í Norðausturkjördæmi fer fram póstkosning sem stendur yfir frá 1.mars til 31.mars 2021.

Þeir sem vilja styðja mig á lista flokksins geta gengið í flokkinn í gegnum heimasíðu Framsóknarflokksins. Stuðningsmenn þurfa að skrá sig í flokkinn fyrir 30. janúar.“


Tengdar fréttir sem þú gætir haft áhuga á að lesa: