- Advertisement -

Framsókn vill fá að sjá samninginn

Þórarinn Ingi Pétursson þingmaður Framsóknar steig fram í Vikulokunum í gær og lagði ríka áherslu á að starfslokasamningur fyrrverandi bankastjóra Íslandsbanka yrði birtur strax. Þetta er afstaða þingflokks Framsóknar en í kjölfarið hefur fjárlaganefnd gert slíkt hið sama,“ skrifar Ingibjörg Isaksen þingflokksformaður Framsóknar.

„Það er sorglegt að heyra stjórnarformann bankans hafna birtingu samningsins – en til að auka traust almennings þarf gagnsæi og auðmýkt að ríkja. Slíkt sýnir hann því miður ekki og því líklega er eðlilegt að spyrja hvort að nýrrar stjórnar sé þörf þegar núverandi stjórn virðist ekki gera sér grein fyrir alvarleika þeirra vinnubragða sem nú hafa komið i ljós.

Ég bind vonir við að hluthafafundur Íslandsbanka ákveði að birta samninginn nú þegar,“ skrifaði Ingibjörg


Tengdar fréttir sem þú gætir haft áhuga á að lesa: