„Við erum að fá þriðja menntamálaráðherrann á einu ári og nú reynir á.“
Alþingi: „Við í Framsókn höfum vissulega verið með þennan málaflokk undanfarin sjö ár,“ sagði Ingibjörg Isaksen, þingflokksformaður Framsóknar og líklegust til að verða næsti formaður flokkksins síns, á Alþingi í gær, þegar hún talaði um menntamál.
„Ég held að það sé óhætt að segja að umræða um menntamál hafi náð nýjum hæðum undanfarna daga. Við erum að fá þriðja menntamálaráðherrann á einu ári og nú reynir á. Það reynir á okkur öll, þingmenn hér inni, ráðherra, að við tökum málefnalega umræðu um málefni barna og ungmenna, sérstaklega þegar kemur að líðan þeirra og menntun. Það skiptir líka máli að við ræðum heildarmyndina, að við forðumst einhverjar skyndilausnir og séum ekki með einhverja sleggjudóma án þess að hafa einhver gögn og gagnreyndar aðferðir að baki okkar máli,“ sagði Ingibjörg.
„Við í Framsókn höfum vissulega verið með þennan málaflokk undanfarin sjö ár. Það hefur mikið áunnist en vissulega eru önnur verkefni sem við hefðum viljað að hefðu getað gengið hraðar. Segjandi þetta þá er þetta langtímaverkefni. Þetta er ekki verkefni sem einhver einn ráðherra getur leyst á einu kjörtímabili. Þetta er langtímaverkefni og verður á höndum okkar stjórnmálamanna um ókomna tíð. En við finnum til ábyrgðar og við höfum sent erindi til allra formanna hér á þingi þar sem við köllum eftir því að við eigum samtal við hagaðila, að við eigum samtal við fagfólkið í greininni og í framhaldinu yrði stofnaður þverpólitískur hópur þar sem er einn aðili frá hverjum einasta þingflokki hér á þingi þar sem við fundum með fagfólkinu og búum til lausnir til skemmri og lengri tíma sem við sammælumst um sem geta þá raungerst.“
„Ég vil ítreka það að þegar við stjórnmálamenn náum saman um stór samfélagsleg verkefni þá skapast stöðugleiki, skapast traust og það skapast líka og næst betri árangur sem er afar mikilvægt fyrir þennan málaflokk sem er málaflokkur framtíðarinnar og einn mikilvægasti málaflokkurinn hér í þinginu. Mig langar að spyrja hæstvirtan ráðherra hvernig hún taki í þessa beiðni okkar í Framsókn og hvort hún sé tilbúin til þess að leggjast á eitt með okkur og að við tökum saman utan um þennan málaflokk.“
Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir svaraði Ingibjörgu og sagði meðal annars: „Skólakerfið okkar er ekki ónýtt, það er ekki þannig. Skólakerfið okkar er með götum, við vitum það. Það eru göt hér og þar, m.a. út frá krefjandi áskorunum samtímans sem við verðum öll sem eitt að reyna að sammælast um að laga í samstarfi við skólasamfélagið, þ.e. við fagfólkið, við kennara en ekki síður við foreldra og nærsamfélagið sem slíkt. Þetta er risaáskorun og ég fagna því að við fáum að ræða þetta hér í óundirbúnum fyrirspurnum. Það er rétt, þetta er langtímaverkefni sem við þurfum að fara í.“a
ÞKG sagði svo: „Ég vil nefna varðandi þverpólitíska þingmannahópinn að ég held að það sé mjög mikilvægt að allir flokkar komi að þessu en að því er mér skilst er þegar hópur í gangi, þverpólitískur þingmannahópur, sem m.a. fjallar um þetta málefni og málefni barna. Alla vega er ríkur vilji og ég fagna því ef stjórnarandstaðan er tilbúin til að koma með ríkisstjórninni í þessa vegferð til þess að taka betur utan um menntakerfið og börnin og ungmennin okkar núna á þessum krefjandi tímum.“