„Höfum við pólitískt þor til að innleiða það sem virkar?“
Þorvaldur Davíð Kristjánsson.
Umræðan/Facebook: Þorvaldur Davíð Kristjánsson skrifaði:
Í gær viðurkenndi mennta- og barnamálaráðherra, Inga Sæland, að of mörg börn á Íslandi læra ekki að lesa nægilega vel. Þetta er staðreynd sem stjórnvöld hafa vitað um árum saman. PISA-mælingar sýna skýrt að kerfið er ekki að skila árangri, sérstaklega fyrir drengi. Sem þriggja barna faðir var ég mjög ánægður að heyra svona afgerandi og heiðarlegan tón frá ráðherranum. Nú þarf að skipta um gír: setja læsi í forgang, treysta kennurum, taka skjánotkun alvarlega og styðja nýsköpun sem þegar er að skila árangri. Lausnir eru til, bæði erlendis og hér heima, meðal annars í Vestmannaeyjum í gegnum Kveikjum neistann verkefnið og hjá frumkvöðlum eins og Tryggvi Hjaltason og teyminu hjá Andvara. Spurningin er einföld: höfum við pólitískt þor til að innleiða það sem virkar? Við getum ekki beðið lengur.