- Advertisement -

GÞÞ: „Þetta mun veikja Ísland, þetta mun veikja íslenskan sjávarútveg“

Alþingi: Guðlaugur Þór Þórðarson sagði í morgun:

„Okkur voru að berast stórar fréttir í morgun, að hæstvirt ríkisstjórn hafi samið fyrir okkar hönd um makríl. Hvað er í þessu samkomulagi? Við ætlum ekki að fara eftir vísindalegri ráðgjöf. Við erum hér að fórna prinsippum sem við Íslendingar höfum alltaf staðið fyrir, alltaf þangað til núna. Við skiljum vini okkar Grænlendinga eftir á köldum klaka. Við höfum alltaf mótmælt þeim vinnubrögðum. Auðvitað erum við að fá miklu minna heldur en veiðireynsla okkar hefur gefið okkur, miklu minna, minna en Færeyingar þótt það séu engin málefnaleg rök fyrir því. Til hvers var barist? Þetta er búið að vera barátta í áratugi, að við séum að standa fyrir það sem við Íslendingar höfum staðið fyrir; sjálfbærar veiðar og að við fáum réttlátan hlut þegar samið er um flökkustofna.

Virðulegi forseti. Ég vil fá að vita: Hvernig fór samráð fram við hváttvirta utanríkismálanefnd? Er það svo að það sé búið að taka öll þingsköp úr sambandi, því ekki, virðulegur forseti, fáum við þær upplýsingar sem við eigum rétt á í háttvirtri fjárlaganefnd?

Virðulegur forseti. Þetta er stórt mál. Það liggur fyrir að þetta mun veikja Ísland, þetta mun veikja íslenskan sjávarútveg og hér erum við að fórna prinsippum sem Íslendingar hafa alltaf staðið fyrir.“


Auglýsing

Tengdar fréttir sem þú gætir haft áhuga á að lesa: