Ég áttaði mig fljótt á því þegar ég kom inn í það ráðuneyti sem hér er mest nefnt að við höfðum lítið gert í 15 ár í raforkunni og í 20 ár í hitaveitunni.
Guðlaugur Þór Þórðarson.
Alþingi: „Ég held að það skipti mjög miklu máli að fólk átti sig á því, vegna þess að við verðum að læra af sögunni, að fyrir nokkrum árum var mjög lítill pólitískur vilji fyrir því að gera einhverja hluti. Ég áttaði mig fljótt á því þegar ég kom inn í það ráðuneyti sem hér er mest nefnt að við höfðum lítið gert í 15 ár í raforkunni og í 20 ár í hitaveitunni. Þegar maður sagði frá því voru fæstir sem trúðu því en það er staðreynd,“ sagði Guðlaugur Þór á Alþingi þegar ræddi lagafrumvarp sem hann er fyrsti flutningsmaður að.
Mest horfir hann á eigin tíma í ríkisstjórnum og viðkomandi ráðuneytum. Guðlaugur Þór var til að mynda umhverfis-, orku- og loftslagsráðherra árin 2021 til 2024. Að auki var Sjálfstæðisflokkurinn í ríkisstjórnum frá 2013 og til ársbyrjunar 2025.
Hér hefur verið talað um hækkun orkuverðs raforku. Hækkun kemur til ef það er skortur. Það er ekki ný saga og hefur ekkert að gera með eitthvað sem við tókum upp 2003, það er verið að vísa í orkupakka. Það er bara lítið af raforku. Ef lítið er af raforku, þá hækkar verðið. Það þýðir að ef þú ætlar að fara í atvinnustarfsemi sem kallar á orku þá geturðu það ekki eða þú þarft að greiða mjög hátt verð fyrir hana og auðvitað á endanum kemur það niður á heimilunum ef framboð er ekki til staðar.
…gríðarlega góða stjórnarandstöðu…
Það hefur hins vegar komið í ljós að þrátt fyrir stór orð hjá forystumönnum núverandi ríkisstjórnar eru þeir ekki búnir að gera neitt í orkumálum og þar af leiðandi miklu minna heldur en var gert á fyrstu mánuðum síðustu ríkisstjórnar. Á fyrstu mánuðum síðustu ríkisstjórnar var kláraður ramminn. Enginn, ekki einn af þingmönnum Viðreisnar, Samfylkingarinnar og Flokks fólksins, greiddi atkvæði með því. Enginn. Þeir greiddu að vísu atkvæði með stækkunarfrumvarpinu og orkusparnaðarfrumvarpinu. En eftir stendur að allir geta flett þessu upp í þingskjölum,“ sagði Guðlaugur Þór.
Í lok ræðu sinnar sagði GÞÞ: „Virðulegi forseti. Hér er bara komið enn eitt málið frá okkur Sjálfstæðismönnum sem stjórnarandstaðan styður. Þessi ríkisstjórn er með gríðarlega góða stjórnarandstöðu almennt en þó sérstaklega þegar kemur að orkumálum og ef ríkisstjórninni er einhver alvara með það sem hún sagði fyrir kosningar um orkumál þá styður hæstvirt ríkisstjórn og ríkisstjórnarflokkarnir þetta mál. Þá erum við að auka orkuöryggi landsmanna og fjölga þeim tækifærum sem við höfum og það hlýtur að vera markmið okkar allra.“
Hér má lesa ræðuna í heild sinni.