Guðrún Hafsteinsdóttir biður um orðið
Eftir að hafa verið sögð vera krati skrifar Guðrún Hafsteinsdóttir grein í Moggann í dag.
„Á Alþingi hefur Sjálfstæðisflokkurinn áfram talað skýrt og af ábyrgð um þau mál sem mestu skipta. Við höfum varað við áhrifum þeirra breytinga sem ríkisstjórnin hyggst gera á samsköttun. Breytingum sem fela í sér verulegar skattahækkanir á fjölskyldur í landinu, þvert á kosningaloforð ríkisstjórnarflokkanna um annað. Þá hefur flokkurinn beint sjónum sínum að fyrirhuguðum breytingum á veiðigjöldum, þar sem hækkun var lögð fram án mats á áhrifum og án samráðs við atvinnulífið og sjávarbyggðir í landinu. Slík vinnubrögð grafa undan trausti og eru ekki til þess fallin að skapa sátt um málaflokkinn,“ skrifar Guðrún.
Þarna skrifar Guðrún um breytingar á veiðigjöldum, ekki um landsbyggðarskatt. Hún fær væntanlega bágt fyrir héðan og þaðan í Suðurkjördæmi.