- Advertisement -

Hefur stjórnarandstaðan enga sjálfsvirðingu?

Það er ótrúlegt að þingmenn stjórnarandstöðunnar hafi aldrei sett sig inn í útreikninga á veiðigjaldinu sbr. 5. gr. laga um veiðigjöld. Það er engu líkara en stjórnarandstaðan haldi þessu fram gegn betri vitund.

Sigurjón Þórðarson alþingismaður.

Sigurjón Þórðarson, þingmaður Flokks fólksins og formaður atvinnuveganefndar, skrifaði:

Það er átakanlegt að fylgjast með andlýðræðislegum tilburðum stjórnarandstöðunnar í veiðigjaldamálinu. Í gær hélt þingflokksformaður Sjálfstæðisflokksinis því fram að í veiðigjaldamálinu væru alltaf að koma nýjar upplýsingar í ljós. Guðlaugur Þór bætti síðan gráu ofan á svart og sagði þingmenn stjórnarliðsins ganga hart fram gegn staðreyndum.

Það er rétt að taka fram að frumvarpið felur það eitt í sér að láta tekjuhlið í reiknistofni á veiðigjaldi taka mið af raunvirði hráefnis í stað útreiknaðs verðs til viðmiðunar til uppgjörs við sjómenn.

Þú gætir haft áhuga á þessum

Skatturinn var tvívegis fenginn á fund atvinnuveganefndar.

Hverjar eru staðreyndir málsins? Málið hefur ekki tekið neinum breytingum frá því umfjöllun atvinnuveganefndar lauk. Stjórnarráðið og skatturinn staðfestu margsinnis að útreikningar væru réttir m.a. í sérstakri yfirlýsingu hinn 16. júní sl.

Eftir að önnur umræða hófst um málið á Alþingi lýsti stjórnarandstaðan yfir efasemdum um útreikninga þrátt fyrir áðurnefnda skýra yfirlýsingu stjórnarráðsins. Það varð því að ráði að skatturinn var tvívegis fenginn á fund atvinnuveganefndar og endurtók hann fyrri yfirlýsingar um að útreikningar meirihlutans væru réttir. Skatturinn blés jafnframt á furðulega óreiðukenningu um keðjuverkandi hækkun gjaldsins eins og fullyrt var í Morgunblaðinu og stjórnarandstaðan gerði að sinni.

Það er ótrúlegt að þingmenn stjórnarandstöðunnar hafi aldrei sett sig inn í útreikninga á veiðigjaldinu sbr. 5. gr. laga um veiðigjöld. Það er engu líkara en stjórnarandstaðan haldi þessu fram gegn betri vitund. Að tilgangurinn helgi meðalið hjá stjórnarandstöðunni.

Það getur vissulega verið tyrfið að komast í gegnum 5. grein laganna en hér að neðan er gott eyðublað frá skattinum sem skýrir kostnaðar- og tekjuhliðar sem eru grundvöllur útreikningsins.


Tengdar fréttir sem þú gætir haft áhuga á að lesa: