Facebook:
Sigurjón Þórðarson alþingismaður skrifaði:
Í vikunnin fékk ég svör við fyrirspurn um ráðgjöf Hafró. Í svörunum er staðfest að þorskstofninn sem mældur var árið 2019 vera 1.402 þús tonn er nú endurmetinn og sagður í raun hafa verið 267 þús tonnum minni það ár eða 1.135 þús tonn.
Ekki kom það svar mér á óvart en engu að síður er gott að fá þetta staðfest með skýrum hætti. Það sem kom hins vegar á óvart voru skýringarnar. Ég get ekki betur skilið svarið en að skýringin væri að nú eru fleiri árgangar með í útreikningum á stofnstærðinni sem voru ekki með áður þ.e. 10 til 14 ára gamlir fiskar. Ef þetta er skýringin á endurmatinu þá hefði ég talið að það hefði átt að leiða til hækkaðs stofnmats og alls ekki lækkaðs.
Hrapið á stofnmatinu staðfestir óvissuna í stofnmatinu rennir stoðum undir þá kenningu að ef dregið er úr veiðum, þá aukast önnur afföll af náttúrulegum orsökum m.a. sjálfrán.
