- Advertisement -

Helgi Áss í framboð fyrir Miðflokkinn

Umræðan/Facebook: Helgi Áss Grétarsson skrifaði:

„Síðasta vika var viðburðarrík í mínu lífi sem og á mínum ferli sem kjörinn fulltrúi í borgarstjórn Reykjavíkur. Meðal annars mætti ég í viðtal þar sem mér var tjáð að ég væri „hvítur miðaldra karl með bindi“. Merkimiði af þessu tagi þykir mér frekar ódýr þar eð taka þarf hverjum einstaklingi í þessu lífi eins og hann er skapaður.

Fólk með reynslu getur staðið sig vel í stjórnmálum, rétt eins og þeir sem eru að stíga sín fyrstu skref. Vega og meta þarf fólk hlutlægt, á grundvelli málflutnings þeirra, verka og hugmynda.

Allar götur síðan í febrúar 2022 hef ég tekið virkan þátt í borgarmálunum og brenn ég fyrir hagsmunum Reykjavíkur. Rekstur borgarinnar stendur á krossgötum þar eð áframhaldandi skuldasöfnun er klafi sem við megum ekki leggja á herðar komandi kynslóða. Ég vil leggja mitt af mörkum til að snúa þessari þróun við og tryggja ábyrga fjármálastjórn Reykjavíkurborgar.

Þú gætir haft áhuga á þessum

Málefni Breiðholtsins, þar sem ég ólst upp, hafa verið mér ofarlega í huga. Ég sé mörg tækifæri til bóta í hverfinu, ekki síst varðandi rekstur Mjóddarinnar, stærstu skiptistöðvar landsins.

Í gegnum setu mína í fagráðum borgarinnar hef ég öðlast víðtæka þekkingu á skóla- og velferðarmálum, en mestan áhuga hef ég á skipulags- og samgöngumálum. Sem dæmi rýndi ég á sínum tíma ítarlega í hvernig „Græna gímaldið“ við Álfabakka varð til, en sú greining veitti mér dýrmæta og skarpa sýn á gangverk borgarkerfisins.

Ég hlakka til að halda áfram vinnu minni fyrir Reykjavík á næsta kjörtímabili. Það ætla ég að gera undir merkjum Miðflokksins, sem tók mér opnum örmum fyrir viku síðan.

Það hefur verið gefandi að kynnast nýjum félögum sem deila þeirri sýn að stjórna eigi af heilbrigðri skynsemi, virðingu fyrir almannafé og með það að markmiði að leysa mál fyrir fólkið í borginni – en ekki fyrir kerfið sjálft.

Kæru vinir.

Ég gef hér með kost á mér á lista Miðflokksins í komandi borgarstjórnarkosningum og er uppstillingarnefnd flokksins upplýst um þá ákvörðun mína.“


Auglýsing

Tengdar fréttir sem þú gætir haft áhuga á að lesa: