- Advertisement -

„Hér erum við ein heild; hamingjusöm ríkisstjórn fyrir fólkið í landinu“

Alþingi:

„Ég þakka háttvirtum þingmanni, Sigurði Inga Jóhannssyni fyrir alveg frábæra fyrirspurn sem gleður mig mjög mikið því að hér er nákvæmlega allt að frétta sem háttvirtur þingmaður taldi upp. Í brunninn í dag vorum við að setja frumvarp um hlutdeildarlánin sem verður tekið fyrir í ríkisstjórn á morgun,“ svaraði Inga Sæland fyrirspurn Sigurðar Inga.

Hver er staðan?“

Sigurður Ingi: „Nú spyr ég, mánuði eftir að fyrsti húsnæðispakkinn var kynntur með öllum þeim flugeldasýningum um meira og hraðar, aðgerðir og framkvæmdir: Er ekkert að frétta? Hver er staðan og af hverju er ekkert að frétta? Er ágreiningur í ríkisstjórninni um að klára málið með þessum hætti? Eru vandræði við að reyna að skila hallalausum fjárlögum 2027 að valda því að ekki sé hægt að ganga til framkvæmda, koma húsnæðismarkaðinum í gang, gera meira og gera hraðar, hæstvirtur félags- og húsnæðismálaráðherra? Hver er staðan?“

Þú gætir haft áhuga á þessum

Þessi ríkisstjórn er einhuga…

Inga Sæland: „Ný vinnustofa húsnæðismála verður haldin núna 4. desember næstkomandi þar sem við erum að undirbúa pakka númer tvö til að geta flýtt enn hraðar uppbyggingunni sem hv. þingmaður hefur, eðli málsins samkvæmt og skiljanlega, áhyggjur af, eins og við gerum reyndar öll, þar sem við ætlum að reyna að líta til lóða sem ríkið á nú þegar og jafnvel húsnæðis sem við gætum nýtt til mun hraðari uppbyggingu. Hvað lýtur að hlutdeildarlánunum þá hafa þau verið greidd út mánaðarlega, ólíkt því sem var eftir að bremsa kom á í vor. Nú er kominn fyrirsjáanleiki, í hverjum einasta mánuði eru greidd út hlutdeildarlán. Það er framtíðarsýn og það er styrkur til framtíðar. Það er öryggi, festa og fyrirsjáanleiki, alveg ólíkt því sem áður var. Það má því í einu orði segja: Hlutdeildarlánin erum við að festa í sessi og ekki bara fyrir ákveðna aðila sem hafa því miður átt mjög erfitt með að komast í gegnum greiðslumat. Þessi ríkisstjórn er raunverulega að taka utan um þá sem höllustum fæti standa. Við erum raunverulega að fara að aðstoða alla þá með því að hækka öll viðmið og lyfta upp öllu í því kerfi þannig að það nái utan um fleiri. Háttvirtur þingmaður getur verið glaður með okkur og það eru bara gleðileg jól fram undan fyrir þennan hóp. Þessi ríkisstjórn er einhuga, hún er samstiga og allur uggur um eitthvað annað, að við séum ekki hér bjartsýn og brosandi og tökum utan um verkið sem við erum að vinna af heilum hug — ég get slegið á allar svoleiðis áhyggjur því að þær eru ekki til staðar. Hér erum við ein heild; hamingjusöm ríkisstjórn fyrir fólkið í landinu.“


Auglýsing

Tengdar fréttir sem þú gætir haft áhuga á að lesa: