„Hversu mikill má fórnarkostnaðurinn verða í þessari herferð gegn fjölskyldunum fjórum eða fimm?“
Sigmundur Davíð Gunnlaugsson.
„Hæstvirtur forsætisráðherra upplýsti um það að þetta mikla veiðigjaldamál snúist í raun um herferð gegn fjórum til fimm fjölskyldum. En þá hlýtur maður að velta fyrir sér ja, í fyrsta lagi auðvitað hvort eðlilegt sé að stjórnvöld fari fram með þeim hætti að ætlunin sé fyrst og fremst að ná til einhverra fjögurra eða fimm fjölskyldna sem þó hefur ekki verið upplýst um hverjar eru. En hitt er spurningin um hversu mikill fórnarkostnaðurinn má vera af þessari herferð hæstvirts forsætisráðherra gegn fjölskyldunum fjórum eða fimm, því að víða um land hefur fólk núna bara mjög verulegar áhyggjur af afkomu sinni,“ sagði Sigmundur Davíð Gunnlaugsson formaður Miðflokksins.
„Það eru ekki eingöngu þeir sem eru að reka sjávarútvegsfyrirtæki heldur fjölmargir aðrir sem reiða sig á tengdar greinar af þjónustu við sjávarútveginn og hafa lýst gríðarlegum áhyggjum, m.a. í erindum til Alþingis, sem mörg hver hafa verið nefnd hér í umræðunni, þótt ráðherrar og hv. þingmenn meiri hlutans gerir lítið úr þeirri umræðu og fyrir vikið þeim áhyggjum sem lýst er einnig í fjölmörgum athugasemdum frá fulltrúum sveitarfélaga sem eru þá, að því er virðist, ómarktækar að mati hæstvirtrar ríkisstjórnar.
Nú hefur frumkvöðull á Vestfjörðum, Guðmundur Fertram Sigurjónsson, lýst því hvernig ríkisstjórnin sé með þessari aðferð, þessari nálgun sinni, að vega að því efnahagsundri sem hefur verið að eiga sér stað á Vestfjörðum eftir mörg erfið ár og erfiða áratugi þar, að þá standi nú til að slá á það með sovéskum aðferðum. Nefnt er að 91% af rekstrarafkomu eins meðalstórs sjávarútvegsfyrirtækis verði gert upptækt á þennan sovéska hátt. Spurningin er bara þessi, frú forseti: Hversu mikill má fórnarkostnaðurinn verða í þessari herferð gegn fjölskyldunum fjórum eða fimm?“
Þetta var Sigmundur Davíð.
Hér má lesa svara Kristrúnar Frostadóttur forsætisráðherra.