- Advertisement -

Höfnuðu vilja Hildar

Ekki síst þar sem nýr meirihluti stefni að sölu tveggja dótturfyrirtækja Orkuveitunnar.

Stjórnmál: Nýr borgarstjóri segist ekki hafa getað myndað þann meirihluta sem Hildur helst kaus:

Í Mogganum í dag er langt viðtal við Hildi Björnsdóttur, sem verður borgarstjóri síðar í dag. Þar kemur fram að samstarfsfólk hennar, sennilega bæði innan Sjálfstæðisflokksins, sem og innan Viðreisnar og Framsóknar, neituðu henni um að Miðflokkurinn fengi aðild að meirihlutanum.

„Þótt hún hafi ekki valið að mynda meirihluta með Miðflokknum segir hún samskiptin við Miðflokksmenn hafa verið góð. Þess vegna hafi hún boðið Ara Edwald, oddvita Miðflokks, að taka við stjórnarformennsku í Orkuveitu Reykjavíkur (OR), sem sé veigamikið hlutverk, ekki síst þar sem nýr meirihluti stefni að sölu tveggja dótturfyrirtækja hennar, aukinni orkuöflun og bættum rekstri,“ segir í Mogganum.

Meira úr Mogganum: „Hildur viðurkennir að ákvörðunin um meirihlutamyndun hafi verið snúin. Hún hafi reynt til þrautar að mynda fjögurra flokka borgaralegan meirihluta, en það hafi ekki gengið. Hún sé þó ánægð með niðurstöðuna, nýr meirihluti hafi breiða skírskotun og geti aukið traust á borgarstjórn.“

Skýrara verður þetta varla. Samstarfsfólk Hildar, innan og utan Sjálfstæðisflokksins, kom í veg fyrir vilja Hildar. Ekki góð byrjun það.


Tengdar fréttir sem þú gætir haft áhuga á að lesa: