Alþingi: Hér kemur ræða frá dagskrárliðnum; Störf þingsins:
Hvort tveggja fór í algjört rugl
„Það getur verið pínlegt að horfast í augu við dýrkeypt mistök, t.d. þegar menn láta sauma á sig jakkaföt sem passa síðan ekkert á mann. Það er búið að eyða öllum þessum peningum, láta einhvern mæla sig og svo bara fer þetta manni ekkert vel. Við höfum gert þetta sem þjóð,“ sagði Pawel Bartoszek í þingræðu fyrr dag.
„Við höfum látið sérsauma á okkur eitt stykki gjaldmiðil. En einhvern veginn passar hann ekki. Ermarnar eru allt of stuttar og vextirnir eru allt of háir. En við erum svo meðvirk með þessum sérsaumaða gjaldmiðli okkar að við kennum okkur sjálfum um. Gjaldmiðillinn er flottur, það erum bara við sem pössum ekki í hann. Við höldum okkur ekki nógu vel í formi og pössum ekki nógu vel upp á okkur. En tölum bara tæpitungulaust um þetta. Vaxtamunur á lánum milli Íslands og evrusvæðisins er 5%. Krónan dempar ekki sveiflur, hún ýkir þær. Það var ekki þannig hér eftir hrun að krónan félli en atvinnustigið hafi aftur á móti haldist hátt.
Nei, hvort tveggja fór í algjört rugl og við vorum átta ár að ná sama atvinnustigi og var fyrir hrun bankakerfisins. Það eru allir búnir að viðurkenna að vextir myndu stórlækka með evru en ESB-andstæðingar eru núna farnir að tala um að háir vextir séu ekkert vandamál. Það er reynt að selja fólki það. Nei, frú forseti, hin sérsaumaða króna hentar kannski einhverjum en hún hentar ekki íslenskum heimilum og íslenskum almenningi.
Forseti. Ég hef lokið málinu.“