- Advertisement -

Höfum þörf fyrir innflyjendur

Alþingi: „Dómsmálaráðherra hræðist hvorki að herða tökin á málum né einstaka mönnum ef út í það er farið. Háttvirtur þingmaður talar hér um að margir stjórnmálamenn hafi í gegnum tíðina lýst yfir áhyggjum. Ég er hér að lýsa konkret aðgerðum. Ég er að lýsa því yfir að á þingmálaskrá þessarar ríkisstjórnar eru fimm frumvörp með tilteknum og markvissum aðgerðum,“ svaraði Þorbjörg Sigríður fyrirspurn frá Sigmundi Davíð.

„Ég er ekki í hópi þeirra sem agnúast út í það að á Íslandi búi útlendingar eða innflytjendur. Þannig viljum við hafa það. Heilbrigðiskerfið okkar og margar mikilvægar atvinnugreinar þurfa mjög sárlega á því að halda að við séum með innflytjendur á Íslandi,“ sagði ráðherrann og hélt áfram:

„Ég er hins vegar þeirrar skoðunar að við eigum að ganga í takt við önnur Norðurlönd. Ég hef fundað með ráðherrum útlendingamála á hinum Norðurlöndunum og þar sýnist mér að við göngum gegnumgangandi í góðum takt því alls staðar eru verkefnin þau sömu, alls staðar eru áskoranirnar hinar sömu, hvort sem við erum að tala við Dani, Finna, Norðmenn eða Svía. Áskoranirnar eru hinar sömu og við göngum í takt. Við vinnum í samræmi við stefnu hinna Norðurlandanna.“

Þú gætir haft áhuga á þessum

Tengdar fréttir sem þú gætir haft áhuga á að lesa: