- Advertisement -

Horfði Stefán Eiríksson á Kastljósið?

Að snúa þessu upp á þjóðina er skemmtilega óskammfeilið.

Sigurjón Þórðarson:

Ég horfi af og til á Norrænar sjónvarpsstöðvar einkum fréttatengt efni og ber það gjarnan saman við það sem boðið er upp á í RÚV af svipuðu efni.

Í gærkvöld bauð RÚV einum ríkasta manni landsins inn í stofu landsmanna. Tilefnið var að hann brýtur lög um stjórn fiskveiða þ.e. að aflahlutdeild skipa í hans eigu er komin langt út fyrir leyfileg mörk og hann á í endalausum útistöðum við yfirvöld samkeppnismála sem varð til þess að hætti sem forstjóri Brims. Maðurinn sem um ræðir hefur notið tug milljarða afskrifta sem að hans sögn á sínum tíma var einhver froða og nýtur algerra forréttinda til að nýta sameiginlega auðlind landsmanna. Þrátt fyrir þessa stöðu þá var greinilegt að hann upplifiði sig sem fórnarlamb yfirvalda og ekki var annað að heyra en að fréttahaukur RÚV hefði ákveðna samúð með honum.

Þú gætir haft áhuga á þessum

Skýringar á ýmsum ákvæðum í lögum um stjórn fiskveiða voru kostulegar en best voru viðbrögðin við lögbrotinu sem snúa að því að hann var kominn langt upp úr kvótaþakinu. Viðbrögðin voru eitthvað á þá leið að þjóðin hefði ákveðið val um hvort að þessum ákvæðum laga væri fylgt og sæti þá að hans sögn uppi með óhagstætt fyrirtæki, Það að snúa þessu upp á þjóðina er skemmtilega óskammfeilið, en hún tók einmitt afstöðu gegn þessu fyrirkomulagi sem nú er viðhaft í sjávarútvegi í þjóðaratkvæðagreiðslu um nýja stjórnarskrá árið 2012. Þjóðin hafnaði kerfinu enda býður það upp á að auðlindin verði seld úr landi. Stjórnmálastéttin á Íslandi hefur hingað til hunsað niðurstöðu úr lýðræðislegri kosningu og skýran vilja þjóðarinnar sem birst hefur hvað eftir annað í skoðunarkönnunum þrátt fyrir einhliða áróður fyrir illræmdu kvótakerfi.

Stefán Eiríksson útvarpsstjóri. Hvernig ætli honum hafi líkað efnistökun i Kastljósi.

Aldrei hef ég séð efnistök sem þessi í Norrænum ríkisfjölmiðlum þ.e. að þeir taki upp málstað og fórnarlambavæði auðmenn sem hafa gerst brotlegir við lög og liggja undir rannsókn eftirlitsstofnana um efnahagsbrot!

Mögulega er hægt að finna hliðstæður í öðrum ríkjum sem deila með okkur setu á gráa listanum góða s.s. Norður Kórea Gahna Bólivíu og Makedóníu.

Hvernig er það finnst gamla góða lögreglustjóranum Stefáni Eiríkssyni útvarpsstjóra þessi undirlægju og sleikjugangur gagnvart brotlegum auðmönnum ekki ganga nokkuð langt í Kastljósinu?


Tengdar fréttir sem þú gætir haft áhuga á að lesa: