- Advertisement -

Vill Vg viðhalda Namíbísku ástandi á Íslandi?

Sigurjón Þórðarson skrifar:

Almenningur í íslensku Verbúðinni þarf að fá skýr svör um hvort að ráðherrann ætli að hefja nú þegar raunverulegar endurbætur eða slá öllu á frest með einhverju nefndarleikriti.

Í gær kynnti sjávarútvegsráðherra plagg sem hún kallaði áherslur og verklag við stefnumótun á sviði matvæla.

Sjávarútvegsráðherra Svandís Svavarsdóttir opnaði umbótaáætlun sína á kvótakerfinu heldur betur ekki á því að vitna í stefnu eigins flokks. Nei, leiðarstefið í vinnunni virðist eiga að verða skýrsla sem Kristján Þór Júlíusson, lét einn af hugmyndfræðingum kvótakerfisins Svein Agnarsson skrifa um eigin teóríu árið 2021. Niðurstaða skýrslu Sveins var sú sama og þeirrar skýrslu sem hann skrifaði árið 2007, sem bar nafnið þjóðhagsleg áhrif aflareglu, þ.e. að hugmyndafræði hans sjálfs væri dásamleg.  

Eini skugginn á dásemdunum var að aflinn hafði dregist gríðarlega saman eftir hugmyndafræði hans var tekin upp. Niðurstaðan var eitthvað á þá leið að reiknilíkanið, sem að vísu stangast á við viðtekna vistfræði, hefði sem slíkt staðist og jafnframt allir útreikningar, en náttúran hefði breyst miðað við gefnar forsendur!

Þú gætir haft áhuga á þessum

…þá getur Vg ekki talist neinn umbótaflokkur.

Í stað þess að Svandís bretti upp ermar og taki strax á þeim þáttum sem blasir við að þurfi að færa til betri vegar s.s. taka á þeim stóru í greininni sem komnir eru langt upp fyrir lögbundið kvótaþak og milliverðlagningunni í gegnum gervisölufélög í skattaskjólum (Namibíuaðferðin), þá virðist sem hún ætli að setja öll mál í enn eina sérhagsmunanefndina og salta í nokkur ár. 

Almenningur í íslensku Verbúðinni þarf að fá skýr svör um hvort að ráðherrann ætli að hefja nú þegar raunverulegar endurbætur eða slá öllu á frest með einhverju nefndarleikriti.

Ef raunin verður sú sem virðist stefna í þ.e. sömu „sérfræðingarnir“ verða enn á ný fengnir til að fella dóma um eigin verk og slá endurbótum á frest, þá getur Vg ekki talist neinn umbótaflokkur.


Auglýsing

Tengdar fréttir sem þú gætir haft áhuga á að lesa: