- Advertisement -

Forkastanleg vinnubrögð Svandísar

Fréttatilkynning:

Sameiginleg fréttatilkynning frá Landssambandi smábátaeigenda (LS),

Strandveiðifélagi Íslands (STÍ) og Samtökum fiskframleiðenda og útflytjenda (SFÚ).

Í maí 2022 skipaði Svandís Svavarsdóttir matvælaráðherra fjóra starfshópa til að greina áskoranir og tækifæri í sjávarútvegi og tengdum greinum.

Þú gætir haft áhuga á þessum

Að auki skipaði ráðherra 27 manna „Samráðsnefnd“ sem við undirritaðir settumst í og töldum að gegndi því hlutverki að taka við tillögum og niðurstöðum starfshópanna til frekari úrvinnslu.

Við ákváðum að þiggja setu í „Samráðsnefndinni“ í þeirri von að á okkur yrði hlustað og áherslur okkar myndu koma fram í skýrslu starfshópanna.  Nú, u.þ.b. 16 mánuðum síðar blasir við skýrsla frá starfshópum nefndarinnar.  Skýrsla sem ekki hefur verið kynnt í Samráðsnefndinni hvað þá að leitað hafi verið eftir athugasemdum nefndarinnar við hana.  Vinnubrögðin eru forkastanleg og kallar fram spurninguna hvert var hlutverk Samráðsnefndinnar þar sem skýrslan sem kynnt hefur verið er ekki hennar verk.

Kynningin 29. ágúst sl endurspeglaði þetta fullkomlega.

Undirritaðir, f.h. þeirra félagasamtaka sem við erum í forystu fyrir lýsum því hér með yfir að við höfnum því alfarið að okkar samtök séu bendluð við niðurstöður „Auðlindarinnar okkar“.

Reykjavík 1. september 2023

Arnar Atlason formaður SFÚ

Arthur Bogason formaður LS

Kjartan Páll Sveinsson formaður STÍ


Tengdar fréttir sem þú gætir haft áhuga á að lesa: