- Advertisement -

Hverfahátíðir og Reykjavík Bacon Festival

Mannlíf Á laugardag halda íbúasamtök hverfahátíðir í Árbænum, Grafarholtinu og Laugardal. Í miðborginni er hin skemmtilega undarlega, en bragðgóða og vellyktandi Beikonhátíð sem hefur slegið í gegn á undanförnum árum. Veitingamenn á Skólavörðustíg taka fullan þátt í hátíðinni og nú á dögunum var Sóley okkar Tómasdóttir skipuð Beikonsendiherra yfir Íslandi af skipuleggjendum hátíðarinnar, Beikonbræðralaginu. Reykjavík Bacon Festival er um helgina á Skólavörðustíg milli kl. 14.00 og 17.00. Ég hvet líka alla til að leggja leið sína í Fógetagarðinn þar sem mörg af framsæknustu veitingahúsum borgarinnar bjóða upp á götu-útgáfu af krásum sínum undir heitinu Krás.


Tengdar fréttir sem þú gætir haft áhuga á að lesa: