- Advertisement -

Minni ánægja með Ólaf Ragnar

Samfélag Færri segjast vera ánægðir með störf Ólafs Ragnars Grímssonar nú en í langan tíma. Að sama skapi segjast fleiri vera óángæðir með forsetann nú en lengi áður.

Ólafur Ragnar hefur eigi að síður mikinn stuðning meðal þjóðarinnar, þar sem 47,8 prósent segjast ánægðir með störf forsetans, óánægðir eru 25,22 prósent og 26,9 prósent segjast hvorki né.

Þetta kemur fram í nýlegri könnun MMR.

Ekki hafa færri sagst vera ánægðir með störf forsetans síðan í júní 2011.

Þú gætir haft áhuga á þessum

Tengdar fréttir sem þú gætir haft áhuga á að lesa: