- Advertisement -

Óvirðing við kjósendur að svíkja kosningaloforð

Samfélag Bjarni Benediktsson, formaður Sjálfstæðisflokksins, lofaði fyrir þingkosningarnar 2013 að afnema allar tekjutengingar almannatrygginga. Hann hefur ekki staðið við það. Það er óvirðing við kjósendur að svíkja kosningaloforð. En það er jafnvel enn alvarlegra að rjúfa kosningafyrirheitin og segja síðan við kjósendur að búið sé að efna kosningaloforðin! Hvað kallast slík framkoma?

Þannig endar grein sem Björg Guðmundsson viðskiptarfræðingur og eldri borgari skrifar í Fréttablaðið.

„Það er algengt, að stjórnmálamenn gefi mikil loforð í kosningum en standi síðan ekki við þau. En það er hins vegar sjaldgæft, að ráðamenn, sem rofið hafa kosningaloforðin, tali eins og þeir hafi efnt þau! En það hefur gerst hjá ráðamönnum núverandi stjórnarflokka,“ skrifar Björgvin.
Ætluðu að leiðrétta kjaragliðnun
Áfram með grein Björgvins: „Stjórnarflokkarnir lofuðu því í alþingiskosningunum 2013 að afturkalla alla kjaraskerðingu aldraðra og öryrkja frá 2009. Jafnframt lofuðu þeir að leiðrétta alla kjaragliðnun tímabilsins 2009-2013 (krepputímans). Mesta kjaraskerðingin fólst i kjaragliðnuninni. Á umræddu tímabili var lífeyrir frystur langtímum saman þó laun hækkuðu. Það kallast kjaragliðnun. Hún var mikil þá. Og nú hefur orðið ný kjaragliðnun á tímabilinu 2013-2015. Mest hefur kjara­gliðnunin orðið á yfirstandandi ári. Ekkert hefur verið gert í því að leiðrétta kjaragliðnun krepputímans. Og ekkert hefur heldur verið gert í því að leiðrétta kjara­gliðnun tímabilsins 2013-2015. Hækka þarf lífeyri um 15% til þess að leiðrétta hana.“

Aðeins lítið afturkallað ennþá
Björgvin segir að kjaraskerðingin 2009 hefur verið afturkölluð að hluta.  „Meðal skerðinga frá 2009, sem eftir er að leiðrétta, er eftirfarandi: Skerðing á frítekjumarki vegna fjármagnstekna. Og skerðing á aldurstengdri örorkuuppbót en hún var skert með tekjutengingu. Oddvitar stjórnarflokkanna segja alltaf: Við erum búnir að afturkalla kjaraskerðinguna frá 2009! En það er ekki rétt.“

Þú gætir haft áhuga á þessum

„Talsmenn stjórnarflokkanna tala eins og búið sé að leiðrétta alla umrædda kjaraskerðingu en það er langur vegur þar frá.“

Sjá nánar hér.


Tengdar fréttir sem þú gætir haft áhuga á að lesa: