- Advertisement -

Í mínum huga væri Sanna mikill fengur í slíkt samstarf

Ólafur Þórarinsson (Labbi í Mánum) skrifaði:

Þegar reynt er að verja land og þjóð fyrir grimmilegum ágangi auðhyggjunnar þarf öflugar varnir með margþætta samsetningu sem bæði ver okkur og veitir okkur sanngjarnt skjól sem öllum er stætt í. Mín hugsjón rímaði hvað best við stefnu VG en þegar ráðherrar flokksins hjúfruðu sig magindalega í spillingarbæli bjarna ben og unnu ötulega að blautustu draumum nýfrjálshyggjunnar var mínum stuðningi endanlega lokið.

Í síðustu kosningum fengu sósíalistar því mitt atkvæði en grunnhugsjón þeirra er mér í blóð borin en í aðdraganda kosninganna fannst mér Sanna og Gunnar Smári bera af þar sem þau ráku frjálshyggjupostulana á gat trekk í trekk og flettu ofan af óhæfuverkum þeirra, Gunnar með sína víðtæku reynslu og kænsku og Sanna eldklár, heiðarleg og góð manneskja en bæði eru þau með það markmið að gera samfélagið réttlátt þar sem gæði heimsins eru líka fyrir þá sem ekki vilja taka þátt í spillingu og endalausri valdagræðgi.

Eftir hallarbyltingu SJ. kemur glögglega í ljós að framlag Sönnu og Gunnars var það sem gerði flokkinn álitlegan fyrir vinstrafólk en hinsvegar finnst mér þeir sem tóku völdin enganvegin hafa það sem til þarf.

Eftir stólagreddu VG ráðherranna er það vörumerki óbrúklegt þó hugsjónin og fjöldi fólks þar á bæ sé góður kjarni í vinstraafl en bæði VG og SJ hafa nú neikvæða ásýnd eins og fylgið sýnir best. Því tel ég eina vitið að fundið verði nýtt nafn og öflugur kjarni sem fólk getur treyst verði þar í fararbroddi.

Í mínum huga væri Sanna mikill fengur í slíkt samstarf enda var ég snöggur að skrifa undir stuðningsyfirlýsingu hjá þeim sem vilja sjá hana sem sinn fulltrúa.


Tengdar fréttir sem þú gætir haft áhuga á að lesa: