Stjórnarráðið: „Eyjólfur Ármannsson, innviðaráðherra, sem einnig fer með málefni mennta- og barnamálaráðuneytisins, er farinn í tímabundið leyfi vegna feðraorlofs. Inga Sæland, félags- og húsnæðismálaráðherra, mun leysa Eyjólf af á meðan leyfinu stendur og fara með málefni innviðaráðuneytis og mennta- og barnamálaráðuneytis.“
Þar með stendur Inga ein eftir sem ráðherra Flokks fólksins. Guðmundur Ingi Kristinsson er í veikindaleyfi. Hann fer í hjartaaðgerð snemma á næsta ári.