Inga Sæland, starfandi innviðaráðherra, hefur aukið strandveiðikvótann um tæp eitt þúsund tonn. Vísir greinir frá;
„Inga segir í samtali við fréttastofu að tæplega 1000 tonna aukning strandveiðipottsins sé stórkostlegur áfangasigur fyrir sjávarpláss landsins og strandveiðimenn.“
„Þetta er náttúrulega eitt helsta baráttumál Flokks fólksins. Við lögðum þetta á stjórnarmyndunarborðið á sínum tíma, að reyna að tryggja 48 daga strandveiðar. Það hefur nú hikstað en farið mjög vel af stað. Í fyrra var flotinn kallaður heim í land 12. júlí og nú þegar erum við að verða komin með ríflega mánuð umfram það. Þannig að núna, við eigum enn eftir á fjórða hundrað tonna af þegar útgefnum aflaheimildum og nú bætum við tæplega þúsund tonnum við. Þannig að vonir standa til þess að við náum hátt í 48 daga.“
„En vertíðin er stórkostleg. Þetta er langöflugasta strandveiðivertíð frá upphafi þessa ólánskerfis, eins og ég vil kalla þetta kerfi. Þetta er mesta aflaverðmæti sem nokkurn tímann hefur verið greitt fyrir aflann okkar. Við erum að fá hér að meðaltali vel yfir 600 krónur fyrir kílóið, meira og minna í allt sumar og í gær sem dæmi þá var kílóið á markaðnum af óslægðum þorski um 684 krónur.“