- Advertisement -

Innantómar upphrópanir, blaður og málþóf…

„Þáverandi stjórnvöld og hagsmunaaðilar í sjávarútvegi mislásu algerlega í stöðuna…“

Úlfar Hauksson.

Facebook: Úlfar Hauksson skrifaði:

„Samkomulagi um veiðar úr sameiginlegum makrílstofni ber að fagna. Afar farsælt skref þrátt fyrir að vísindalegri ráðgjöf sé ekki fylgt í hvívetna. Löngu tímabært og í raun áttum við Íslendingar að semja um þessi mál á sínum tíma þegar slíkt stóð til boða fyrir allnokkrum árum. Þáverandi stjórnvöld og hagsmunaaðilar í sjávarútvegi mislásu algerlega í stöðuna á þeim tíma og glötuðu upplögðu tækifæri til samninga. Verkstjórnin gengur hins vegar í verkin og semur. Glæsileg niðurstaða.

Fyrrum „yfirlætisráðherra“ – Guðlaugur Þór Þórðarson – froðufellir og fabúlerar tóma dellu sem er í raun ekki fréttnæmt. Stjórnarandstaðan hans Gulla er í algeru öngstræti og hefur akkúrat ekkert fram að færa og til málanna að leggja annað en innantómar upphrópanir, blaður og málþóf…“


Tengdar fréttir sem þú gætir haft áhuga á að lesa: