Vildi ríkisstjórnin ekki koma að málinu, þorði hún ekki að koma málinu? Styður ríkisstjórnin þetta mál?
NANNA MARGRÉT GUNNLAUGSDÓTTIR.
Alþingi: Nanna Margrét Gunnlaugsdóttir Miðflokki í þingræðu:
„RÚV er í eigu okkar allra. Engu að síður ákveður framkvæmdastjórn RÚV, ekki stjórn RÚV heldur framkvæmdastjórn RÚV, að taka verulega pólitíska ákvörðun og ákveður að Ísland skuli ekki taka þátt í Eurovision. Á sama tíma eða rétt eftir að það er búið að semja um frið, þegar búið er að skila gíslunum, kemur RÚV og tekur svona ákvörðun. Þess vegna spyr ég: Var aldrei spurt hver sé vilji eigandans? Það er eðlilegt (Gripið fram í.) þrátt fyrir — hér heyrist úr sal „sjálfstæð stofnun“.
Hver er vilji eigandans í svona stóru máli? Það er auðvitað eðlilegt að stjórn RÚV hefði spurt um vilja eigandans í svona pólitísku máli. Var það gert? Vildi ríkisstjórnin ekki koma að málinu, þorði hún ekki að koma málinu? Styður ríkisstjórnin þetta mál? Fyrir okkur sem horfum utan frá þá lítur út fyrir að þetta sé gert með vilja ríkisstjórnarinnar án þess að hún þori að taka ákvörðun og það er mjög óeðlilegt að framkvæmdastjórn taki svona ákvörðun án þess að athuga með vilja eigandans. Ég spyr líka: Hvenær verður það framkvæmdastjórn þóknanlegt að taka þátt aftur? Veit hún eitthvað um það eða ætlar hún að gera það, ja, ég veit ekki, þegar það er kominn á enn meiri friður? Hvenær ætlar framkvæmdastjórnin að taka þátt aftur? Þetta er algjörlega óboðlegt. Ég vil bara fá enda, virðulegur forseti, á orðum framkvæmdastjóra Eurovision, Martin Green, en hann segir:
„Þegar við undirbúum okkur að fagna 70 ára afmæli Eurovision-söngvakeppninnar er hún áfram vettvangur þar sem raddir, menningarheimar, tungumál og tónlist fléttast saman. Þar sem fólk af ólíkum uppruna getur sýnt að í erfiðum heimi er betri heimur mögulegur.“
En nei, Ísland ákvað að fara aðra leið.“