![](https://www.midjan.is/wp-content/uploads/2024/04/Screen-Shot-2024-04-06-at-10.54.48.png)
Kristinn Hrafnsson skrifaði:
Stjórnmál
Nei, Bjarni, Titanic lenti ekki í vatnaskilum og þessi ríkisstjórn steytti á Katrínu Jak sem gafst upp á limminu og gaf út algjöra vantraustsyfirlýsingu með sínu brotthvarfi. Nei, þetta kallar ekkert á ykkar samtal heldur samtal þjóðarinnar við sig sjálfa og þingkosningar og það skiptir engu máli þó að Bjarna finnist engin þörf á kosningum.
Íslenska valdastéttin er að sökkva í yfirgengilegan hroka.
Nú er einn frambjóðanda að setja verk sín í pólitík undir, í von um að verða forseti. Segist samt ekki ætla að vera pólitískur forseti. Hvaða ömurlega skaup er þetta!?
Er íslenskt samfélag að leysast upp í arfalélega sápuóperu?