- Advertisement -

Jafnar ríkisstjórn Kristrúnar við Trump

„Sitja einhvern veginn allsberir úti horni í Brussel og vókaðir upp fyrir axlir. Almenningur er blekktur og borgar brúsann.“

Jón Gunnarsson alþingsimaður Sjálfstæðisflokksins.

„Sitja einhvern veginn allsberir úti horni í Brussel og vókaðir upp fyrir axlir. Almenningur er blekktur og borgar brúsann.“

Jón Gunnarssson alþingismaður skrifaði:

„Eyðileggingarmáttur stjórnmálamanna getur verið mikill og eru mýmörg dæmi þess síðustu öldina og birtist gjarnan í ýmsum afbrigðum sósíalískrar hugmyndafræði. Þeim róttækustu hefur tekist að eyðileggja heilu samfélögin á svipstundu en þeir sem kalla sig lýðræðislega sósíalista kæfa samfélögin hægt og rólega. Gott dæmi er þróun margra velmegandi evrópuríkja þar sem sósíalistar og miðjuflokkar hafa verið alls ráðandi síðustu áratugina. Nú er svo komið að ESB ríkin eru meira og minna að verða ósjálfbær, miðstýring, hærri skattar og íþyngjandi regluverk hafa gert það að verkum nýsköpun er lítil sem engin og dregið hefur úr samkeppnshæfni landanna. Sitja einhvern veginn allsberir úti horni í Brussel og vókaðir upp fyrir axlir. Almenningur er blekktur og borgar brúsann. Því miður er eins og margir átti sig ekki á því fyrr en of seint og þá þarf mikið átak í byggja upp verðmætasköpun að nýju. Gott dæmi um þetta er hvernig pólitíkin og þeir sem gjarnan kalla sig náttúrverndarsinna hafa komið okkur út í skurð í orkumálum. Það er dýrt spaug,“ skrifaði þingmaðurinn Jón Gunnarsson.

Jóni ganga skrifin vel: „Öll eyðileggingaröfl stjórnmálanna hafa átt það sameiginlegt að ala á öfund og virkja reiði þar sem hana er að finna. Til er ágætt orð, populistar, um þessa stjórnmálamenn. Fremstir meðal jafningja í þessum efnum eru nú um stundir ríkisstjórn Íslands og kannski forseti Bandaríkjanna. Ef fram fer sem horfir mun aðför ríkisstjórnar Íslands að stærstu og mikilvægustu útflutningsgreinum landsins ekki eiga sér hliðstæðu, nema væri í orkumálum. Þessi aðför er ekki bara byggð á réttlæti og sanngirni heldur réttlætt með skoðanakönnunum um vilja landsmanna. Hvorki Kárahnjúkavirkjun né aðrar virkjanir hefðu orðið að veruleika hefðu stjórnmálamenn farið eftir skoðanakönnunum á sínum tíma. Ekki einu sinni Hvalfjarðargöng, sem meirihluti landsmanna var á móti í skoðanakönnunum.“

Hver er eiginlega þeirra pólitík? Skrifar Jón.

„Ríkisstjórn íslands virðist ekki ætla að læra af mistökum sinna manna og annarra heldur vaða út í fenið og helst sem hluti af ESB. Ekki nema vona að margir spyrji sig hvers konar flokkur þessi Viðreisn sé. Hver er eiginlega þeirra pólitík.

Gleðilega páska mín kæru.“


Tengdar fréttir sem þú gætir haft áhuga á að lesa: