- Advertisement -

Jón Gunnarsson: „Við höfum einfaldlega verið að bjóða miklu betur hér“

„Það var 12. febrúar sl. sem Sigmundur Davíð Gunnlaugsson, formaður Miðflokksins og háttvirtur þingmaður, birti vídeó á Facebook-síðu sinni þar sem birt var auglýsing frá ferðaskrifstofu sem ku hafa verið staðsett í Venesúela, en svo urðu áhöld um það þegar betur var að gáð. Við fengum send gögn frá aðila sem hafði farið í gegnum ferlið hjá þessari ferðaskrifstofu, allt að þeim tíma er þurfti að greiða fyrir flugmiðana og þjónustuna,“ sagði Bergþór Ólason á Alþingi.

Hann sagði fólkið fljúga til Mardridar og þaðan til Íslands. Bergþór:

„Þegar upplýsingar sem þessar liggja fyrir, er tekið eitthvert sérstakt tillit til eða haft vökulla auga en annars væri á landamærunum þegar það liggur fyrir að það hafi verið beinlínis selt í flugferð eins og þarna á sér stað, ferðalag eins og þarna er selt í? Stjórnvöld hljóta að hafa orðið vör við þessa umræðu sem átti sér stað frá þarna 12. febrúar og dagana á eftir. Mig langar að spyrja hæstv. ráðherra: Hvernig bregðast stjórnvöld við þegar svona er í pottinn búið?“

Jón Gunnarsson dómsmálaráðhera svaraði Bergþóri og sagði:

En þetta er þá fólk sem í sjálfu sér fer ekki inn í landið…

„Jú, jú, það fór ekki fram hjá mér frekar en öðrum þegar upplýsingar birtust um að það væri verið að auglýsa sérstaklega Ísland sem paradís fyrir þá sem væru að leita eftir vernd í löndum Evrópu. Í sjálfu sér kemur það ekkert á óvart miðað við þær forsendur sem hafa verið ríkjandi í afgreiðslu umsókna þeirra sem koma frá Venesúela. Mest af því fólki kemur í gegnum Evrópu, þ.e. í gegnum Spán fyrst og fremst. Það hafa nú einhvern tímann verið umræður í þinginu þar sem fólk hefur verið haldið þeim misskilningi að Ísland væri fyrsti viðkomustaður í Evrópu, að fólk sem væri að koma hingað frá Venesúela væri að koma í gegnum Bandaríkin, en svo er ekki. Það er að koma í gegnum Spán langmest,“ sagði Jón Gunnarsson.

„En þetta er þá fólk sem í sjálfu sér fer ekki inn í landið heldur bíður á flugvellinum og heldur síðan áfram í flugið til Íslands. Þar með er þetta fólk komið inn á Schengen-svæðið og þannig er það með íbúa frá Venesúela að þeir eru ekki vegabréfsáritunarskyldir inn á Schengen-svæðið. Síðan kemur þetta fólk að landamærum Íslands og óskar eftir vernd. Við því er lítið að gera annað en að samræma þær reglur sem hér gilda um móttöku flóttamanna frá Venesúela eða afgreiðslu þeirra mála til samræmis við það sem gerist í Evrópu. Við höfum einfaldlega verið að bjóða miklu betur hér.

Ákveðin tímamót urðu í því fyrir áramót þegar Útlendingastofnun ákvað að hætta afgreiðslu á þeim forsendum, samkvæmt niðurskurði kærunefndar útlendingamála, og tók að endurskoða aðstæður í Venesúela og byggt m.a. á gögnum frá nágrannaþjóðum okkar og öðrum þjóðum í Evrópu og á hvaða forsendum þær byggja niðurstöður sínar. Nú hefur Útlendingastofnun ákveðið að synja þeim sem eru frá Venesúela upp til hópa um dvalarleyfi. Það er beðið niðurstöðu kærunefndar útlendingamála í þeim efnum og ég hef ekki umráðarétt yfir henni eða get sagt henni fyrir verkum en við bíðum eftir að niðurstaða komi frá þeim.“

Síðar sagði Jón Gunnarsson: „Við tökum þessi mál auðvitað mjög alvarlega og flóttamannafjöldinn frá Venesúela er til verulegrar umhugsunar og er hreinlega stór hluti af þessum of mikla hópi sem hingað er að koma, þessum fjölmenna hópi sem hingað er að koma og við ráðum illa við.“


Auglýsing

Tengdar fréttir sem þú gætir haft áhuga á að lesa: