- Advertisement -

Jón Pétur kvartar undan lögreglunni

Stjórnmál: Sigurjón Þórðarson alþingismaður skrifaði:

„Það er vægast sagt ömurlegt að þingmaður skuli ráðast með þessum hætti að lögreglunni sem er að framfylgja landslögum. Þingmenn ættu miklu frekar að styðja við störf lögreglunnar í stað þess að vera með innihaldslitlar upphrópanir og gera aðsúg að þeim sem framfylgja lögum og reglum.“

Mogginn blés í herlúðra, en ekki hvað, og kallaði dátann Jón Pétur Zimsen á dekk. Jón Pétur sagði ekki hægt að búa við þá óvissu sem nú ríkir varðandi starfsumhverfi netverslana með áfengi. 

Lögreglan lokaði tveimur einkareknum vínbúðum á öðrum degi jóla, afhendingarstöðvum Smaríkisins og Nýju vínbúðarinnar og sektaði fyrirtækin að auki. Samkvæmt áfengislögum er óheimilt að afhenda áfengi á helgidögum Þjóðkirkjunnar. Forsvarsmenn fyrirtækjanna telja lögreglu misskilja starfsemi sína, sem þeir segja fullkomnlega löglega. Þetta segir á mbl.is.

Jón Pétur segist ekki átta sig á hvað varð til þess að lögregla ákvað að ráðast í aðgerðirnar. 

Jón Pétur situr í allsherjar- og menntamálanefnd þingsins en hann segir málefni netverslana með áfengi ekki hafa verið rædd innan nefndarinnar. 

„Nei, þetta hefur ekkert verið rætt. Ég vil samt eiginlega ekki búa í samfélagi þar sem þarf eitthvað svona til svo eitthvað sé gert í málunum. Ég axla mína ábyrgð á því að hafa ekki talað um þetta eða gert eitthvað í þessu. Ég hélt þetta myndi bara starfa í friði og það myndi bara myndast einhver hefð á þessu eða eitthvað slíkt,“ segir á mbl.is.


Tengdar fréttir sem þú gætir haft áhuga á að lesa: