- Advertisement -

Kristrún er á hraðleið til hægri

Þetta eru ekki áherslur Kristrúnar heldur að ná sátt við Miðflokkinn, sem er að breytast í karllægan kristinn hvítan yfirburðarhyggjuflokk að hætti Donald Trump.

Gunnar Smári.

Umræðan/Facebook: Gunnar Smári skrifaði:

„Kristrún er Mette Frederiksen, ætlar með Samfylkinguna langt til hægri í öllum málum. Munurinn er að Danir eru komnir með nóg af Mette (ásælni Trump í Grænland nær ekki að bjarga henni) en Íslendingar eru alls ekki komnir með nóg af Kristrúnu, vilja enn trúa að þar fari vorið í pólitíkinni en ekki haust sósíaldemókratíunnar.

Mette endaði á því að hafna rauðu blokkinni, þótt hún hafi unnið meirihluta í kosningum, og kaus frekar að mynda ríkisstjórn til hægri (enda átti hún enga samleið lengur með vinstrinu). Sú ríkisstjórn er með þeim allra óvinsælustu sem Danir hafa kynnst, samanlagt fylgi flokkanna rétt slefar í 30%. Ómögulegt er að sjá hvernig Sósíaldemókratar ætla að jafna sig á Mette og hennar hraðferð til hægri, flokkurinn hrundi í sveitarstjórnarkosningum og sér fram á afhroð í kosningum sem verða ekki seinna en í haust.

Kristrún hefur fádæma stóra pólitíska inneign.

Samt vill Kristrún feta sömu slóð, tekur helst mið af Mette og svo Keir Starmer í Bretlandi, sem er óvinsælasti forsætisráðherra sögunnar og hefur tapað næstum helmingi þess fylgis sem Verkamannaflokkurinn fékk síðast, og fékk flokkurinn þó dræma kosningu (fékk marga þingmenn vegna hruns Íhaldsflokksins). Kristrún hefur fádæma stóra pólitíska inneign en virðist ætla að fórna henni í hraðleið til hægri fremur en að koma í gegn þeim samfélagsbreytingum sem vinstra fólk óskar eftir:

Húsnæðiskerfi sem þjónar fólki en ekki bröskurum, réttlátt skattkerfi og minna brask, okur og yfirgang auðvaldsins. Þetta eru ekki áherslur Kristrúnar heldur að ná sátt við Miðflokkinn, sem er að breytast í karllægan kristinn hvítan yfirburðarhyggjuflokk að hætti Donald Trump. Miðflokkurinn getur ekki einu sinni andmælt ásælni Trump á Grænlandi, eru svo beygðir undir sinn foringja.“


Tengdar fréttir sem þú gætir haft áhuga á að lesa: