- Advertisement -

Kristrún: „Við munum verja stjórnskipan landsins og heiður Alþingis“

Framferði minni hlutans á sér engin fordæmi og stjórnarandstaðan hefur gengið lengra í málþófi en hefur nokkurn tíma verið gert á Alþingi Íslendinga.

Kristrún Frostadóttir forsætisráðherra.

Hér er umdeild ræða Kristrúnar Frostadóttur forsætisráðherra, sem hún flutti við upphaf þingfundar í dag:

„Það er komin upp ný staða í íslenskum stjórnmálum sem er fordæmalaus í sögu lýðveldisins. Minni hlutinn á Alþingi viðurkennir ekki umboð meiri hlutans til að fylgja sinni stefnu og stendur í vegi fyrir lýðræðislegri afgreiðslu mála hér á Alþingi. Framferði minni hlutans á sér engin fordæmi og stjórnarandstaðan hefur gengið lengra í málþófi en hefur nokkurn tíma verið gert á Alþingi Íslendinga. Sú staða sem upp er komin er alvarleg fyrir lýðræðið og stjórnskipan landsins og þýðir í raun að minni hlutinn viðurkennir ekki niðurstöður kosninga heldur freistar þess að stýra þinginu þrátt fyrir að vera ekki með meiri hluta á Alþingi.

Lýðræðið er dýrmætt en viðkvæmt. Það veltur ekki aðeins á skrifuðum reglum, stjórnarskrá og þingsköpum heldur einnig óskráðum reglum og virðingu fyrir lýðræðislegum leikreglum. Hvernig við umgöngumst lýðræðið skiptir máli, hvernig við umgöngumst vald, réttindi og skyldur skiptir máli og ábyrgð okkar sem sitjum á Alþingi er mikil. Nú er verkefni okkar að sýna að lýðræðið virki, að það geti átt sér stað valdaskipti hér á Íslandi þegar þjóðin kýs nýtt upphaf í kosningum. Þetta er það sem er í húfi, að lýðræðið virki fyrir fólkið. Forseti. Það er skylda mín sem forsætisráðherra að standa vörð um lýðræðið í landinu. Ég lýsi því yfir fyrir hönd ríkisstjórnarinnar og meiri hlutans á Alþingi: Við munum verja lýðveldið Ísland. Við munum verja stjórnskipan landsins og heiður Alþingis.“

Þú gætir haft áhuga á þessum

Auglýsing

Tengdar fréttir sem þú gætir haft áhuga á að lesa: