- Advertisement -

Kunnulegur söngur saminn í Borgartúni

Sigmar Guðmundsson, þingmaður Viðreisnar, skrifaði:

Klukkan eitt í nótt setti stjórnarandstaðan vafasamt met í maraþonræðuhöldum. Til að mótmæla sanngjörnum veiðigjöldum. Þeir sem best þekkja til fullyrða að fyrsta umræða um þingmál hafi ekki tekið jafn langan tíma og núna frá því þingsköpum var breytt fyrir meira en áratug. Sem er merkilegt í ljósi þess hve þessir flokkar gagnrýndu Pírata gjarnan harkalega.

Það var reyndar fyrirséð og vitað að Sjálfstæðisflokkur, Miðflokkur og Framsókn myndu gera allt til að þvælast fyrir því að hér yrðu veiðigjöldin leiðrétt eins og ákall hefur verið um hjá þjóðinni. Söngurinn er kunnuglegur, saminn í Borgartúninu og hefur verið kyrjaður um áraraðir. Fullyrt er að vissulega megi hækka gjöldin, en alls ekki núna og alls ekki með þessari aðferð, heldur einhvern veginn öðruvísi og þá helst seinna, í óljósri framtíð. Öllum brögðum beitt til að verja ranglætið áfram. En það mun ekki takast.


Tengdar fréttir sem þú gætir haft áhuga á að lesa: