Alþingi: Inga Sæland ráðherra sagði eftirfarandi á Alþingi í dag.
„Ég kem nú líka hérna til þess að nefna það sem háttvirtur þingmaður Bryndís Haraldsdóttir fullyrðir hér að með því að hafa afnumið samsköttun hjóna, eins og um var rætt í gær, séum við hugsanlega að rífa þetta allt til baka. Það skal tekið fram að einstaklingur með 1,5 millj. kr. í laun mun í rauninni missa um 14.000 kr. á mánuði. Einstaklingur með 1,8 millj. kr. í laun mun missa 23.000 kr. á mánuði. Þetta segir nú konan sem í raun og veru hefur verið að kalla eftir því ítrekað að við tækjum bara persónuafsláttinn af okkur sem erum efnameiri og færðum hann niður til þeirra sem eru efnaminni. Þannig að mig langar bara að koma því fram að það er enginn undir 1.350.000 kr. sem mun skerðast við það frumvarp sem við vorum að samþykkja hér í gær.“