- Advertisement -

Lokaðar inn í valdastofnunum karlanna

Gunnar Smári skrifar:

Gunnar Smári Egilsson.

Það getur stundum virst vonlaust að berjast fyrir réttlætinu innan hins endalaust óréttláta kapítalisma, einkum við upphaf baráttunnar. Undanfarna áratugi hafa hin ríku sveigt allar stofnanir samfélagsins að sínum þörfum, breytt lýðræðislegum vettvangi að dagvist fyrir þau sem þjóna hagsmunum hinna ríku og lagt fjölmiðlaumfjöllunina undir sig. En þetta kerfi getur ekki annað en hrunið, almenningur mun sigra. Í Bandaríkjunum holdgervist barátta almennings í kornungri konu, Alexandria Ocasio-Cortez, en varnarmúr hinna ríku í gömlum appelsínugulum karli, sem karlinn á myndinni er að klappa fyrir.

Sendum Alexandríu allar okkar góðu óskir og þakkir fyrir að ráðast á múrinn þar sem hann er hæstur og þéttastur. Sendum okkar baráttukonum sömu óskir, sem eru dagana langa lokaðar inn í valdastofnunum sem karlar smíðuðu til að verjast almenningi, ekki til að þjóna honum; Sönnu Magdalenu, Sólveigu Önnu og fleiri baráttukonum réttlætisins.


Auglýsing

Tengdar fréttir sem þú gætir haft áhuga á að lesa: