„Hvers vegna liggur svona mikið á?“
Jens Garðar Helgason.
„Forsvarsmenn hæstvirtrar ríkisstjórnar höfðu áður sagt að tvöföldun veiðigjalds gæti komið til á áratug. Nú eru allt í einu nokkrir mánuðir til stefnu, talað um leiðréttingu og að hér sé aðeins um að ræða fyrsta skrefið. Það liggur fyrir að sérfræðingar ráðuneytis hæstvirts ráðherra ráðlögðu ríkisstjórninni að leggja mat á áhrifin, ekki aðeins á mögulegar auknar tekjur af breyttu veiðigjaldi heldur einnig áhrif þess á rekstrarforsendur í sjávarútvegi og þannig aðra tekjuöflun ríkissjóðs. Það er ekki nóg að áætla tekjunám í tómarúmi. Við lifum nefnilega í raunheimum, frú forseti. Rétt skal vera rétt, sagði einn hæstvirtur ráðherra. Að mati ótal sérfræðinga í stjórnsýslunni sem og samkvæmt ótal varnaðarorðum frá sveitarstjórnum um allt land er ríkisstjórnin ekki að gera rétt,“ sagði Jens Garðar Helgason, varaformaður Sjálfstæðisflokksins á Alþingi, í umræðu um veiðigjaldið.
Jens Garar bætti við: „Ég vil því spyrja hæstvirtan ráðherra: Stendur enn til að leggja þetta mál fram óbreytt, keyra það í gegn á lokadögum þings þrátt fyrir alla þá ágalla sem bent hefur verið á? Hvers vegna liggur svona mikið á?“
„Málið er drög. Málið er í samráði. Nú er verið að vinna úr þeim ríflega 100 umsögnum sem bárust. Það eru samtöl í gangi, hafa verið í gangi á meðan málið hefur verið í samráðsgátt,“ svaraði Hanna Katrín Friðriksson atvinnuvegaráðherra.
Ég ætla bara að segja þetta.
„Það er verið að vinna úr umsögnum. Það er verið að skoða hvort ástæða þyki til að breyta frumvarpinu áður en það kemur hingað inn í þinglega meðferð þar sem það fer sinn gang, fær vonandi málefnalega umræðu, fer í þingnefndina, annan umsagnarfrest og síðan verður það klárað. En af því að háttvirytur þingmaður spyr: Á að klára þetta? þá er svarið einfalt: Já.
Síðan hitt: Af hverju er ríkisstjórnin ekki í raunheimum? Ég ætla bara að segja þetta: Ríkisstjórnin er í raunheimum með almenningi. Má bjóða minnihlutanum að koma með okkur?“