- Advertisement -

Magnea Marinósdóttir vill í borgarstjórn

Yfirlýsing vegna prófkjörs Samfylkingarinnar í Reykjavík fyrir komandi borgarstjórnarkosningar

Kæru félagar,

Ég býð mig fram í 2.–4. sæti á lista Samfylkingarinnar fyrir komandi sveitarstjórnarkosningar í Reykjavík. Málefni borgarinnar snerta okkur öll með beinum hætti og ég vil leggja fram krafta mína, menntun og reynslu til að vinna að bættum hag borgarbúa í anda hugsjóna jafnaðarstefnunnar sem ég hef fylgt af einlægni allt mitt líf.

Sem stjórnmálafræðingur með sérhæfingu í alþjóða- og jafnréttismálum hef ég fengið mikilvæg tækifæri til að vinna að málum sem snerta grunngildi jafnaðarstefnunnar. Má þar nefna jafnrétti og kvenréttindi, þróunar- og mannúðarmál og úrlausnarefni sem lúta að þörfum og réttindum fólks af erlendum uppruna. Ég hef starfað innan Alþingis, stjórnarráðsins, sveitarfélaga, félagasamtaka, háskólasamfélagsins og alþjóðastofnana á nokkrum stöðum í heiminum, birt greinar í fjölmiðlum og veitt viðtöl.

Þessi víðtæka reynsla hefur mótað sýn mína og skapar, að mínu mati, traustan grunn fyrir störf í borgarstjórn.

Sem stofnfélagi í Samfylkingunni hef ég lagt hugsjónum flokksins lið með margskonar hætti í gegnum tíðina. Undanfarin ár hef ég haldið utan um málefnastarf flokksins á sviði stjórnarfars og mannréttinda og setið í stjórn Samfylkingarfélagsins í Reykjavík, Verkalýðsráðsins og Kvennahreyfingarinnar auk þess að vera varamaður í framkvæmdastjórn flokksins.

Það að finna jafnaðarhugsjóninni, manngæsku og samkennd sem nú á undir högg að sækja farveg með úrlausnum sem snerta beint stöðu og velferð fólks hefur verið mjög gefandi. Ég er í eðli mínu umbótasinni og vil því gefa kost á mér til þess að koma með beinum hætti að stefnumótun í borgarstjórn og gera mitt besta til að bæta hag borgarbúa. Ég er óhrædd við að stuðla að nauðsynlegum breytingum ef þörf krefur.

Ég vil beita mér sérstaklega í eftirfarandi málaflokkum:

Jafnrétti og mannréttindi

Að tala fyrir og standa vörð um jafnrétti og mannréttindi allra er lykill að réttlátu samfélagi. Ég vil tryggja að lausnir í þjónustu og skipulagi taki mið af ólíkum þörfum, séu skilvirkar og stuðli að jafnrétti m.a. með gerð faglegra greininga, hagsmunamati og virku samtali við fólk, fyrirtæki og samtök. Það að lausn eins vandamáls skapi ekki annað sem grefur undan jafnrétti, stöðu eða réttindum tiltekins hóps og staða þolenda ofbeldis eru mér einkar hugleikin mál.

Skólamál og tómstundir

Börn og ungmenni eru fjöregg framtíðar okkar. Þau hafa ólíkt atgervi, hæfileika og einstaklingsbundnar þarfir en öll eiga að njóta jafnra tækifæra til náms og þroska. Ég vil tryggja markvissa málörvun barna í skólastarfi jafnt þeirra sem hafa íslensku og annað tungumál sem móðurmál, færni í lestri og lesskilningi og aðgang að tómstundastarfi. Það krefst kerfislægra stuðningsaðgerða út frá stefnu sem hefur jöfnun aðstöðumunar og árangur allra að markmiði.

Innflytjenda- og inngildingarmál

Fólk annars staðar að úr heiminum sem auðgar mannlíf borgarinnar hefur bæði margskonar getu og þarfir eins og aðrir. Ég vil stuðla að því að borgin mæti bæði börnum og fullorðnum af erlendum uppruna með innleiðingu á markvissum inngildingaraðgerðum þvert á svið borgarinnar. Þannig styrkjum við bæði einstaklinga og samfélagið í heild.

Hagur eldri borgara

Um leið og huga þarf að velferð þeirra sem þurfa á aðstoð að halda er mikilvægt að geta leitað í viskubrunn og reynslu eldri kynslóða. Ég vil stuðla að því að fólki hafi tækifæri til að halda áfram störfum svo lengi sem það hefur löngun og getu til.

Húsnæðisöryggi

Þak yfir höfuðið eru mannréttindi. Reykjavíkurborg vinnur nú undir forystu Samfylkingarinnar að lausnum í samvinnu við aðra á uppsöfnuðum húsnæðisvanda. Ég vil gera betur og leita fyrirmynda utan frá um hvernig mögulegt er að auka og jafna aðgengi að öruggu húsnæði á viðráðanlegu verði. Það á einkum við um ung og efnaminna fólk hvort sem það er að kaupa eða leigja.

Skipulags- og samgöngumál

Borgarskipulag í anda jafnaðarstefnunnar hefur velferð og vellíðan allra íbúa að leiðarljósi með uppbyggingu hverfa þar sem er að finna fjölbreytt búsetuform. Mér finnst mikilvægt að huga að fagurfræði, birtu og nálægð við náttúru fyrir okkur öll. Sama máli gegnir um samgöngur sem þurfa að samanstanda af hagkvæmum og raunhæfum kostum sem taka mið af mismunandi þörfum íbúanna, tæknilegum breytingunum og sérstöðu borgarinnar.

Listir og menning

Líflegt lista- og menningarlíf styrkir borgina. Ég vil bæta aðstöðu listafólks til skapandi starfa og nýta í auknum mæli krafta þeirra sem og hönnuða til að fegra borgina og mannlífið. Jafnframt að stuðla að öflugum menningarsamskiptum við aðrar borgir, ekki síst á Norður- og Vestnorrænu löndunum.

Reykjavíkurborg sem stjórnvald

Ég vil beita mér fyrir því að verklag og skilvirkni, þjónustumenning og samskipti Reykjavíkurborgar við fólk, fyrirtæki og samtök sé bætt til að auka traust til borgarinnar. Ég er reiðubúin að vinna af heilindum að velferð borgarbúa og fyrirtækja og stuðla áframhaldandi grósku Reykjavíkurborgar með ykkar stuðningi.

Eflum jafnaðarstefnuna. Það er allra hagur.


Tengdar fréttir sem þú gætir haft áhuga á að lesa: