- Advertisement -

Með „borgarstjóralaun“

Katrín Baldursdóttir.

„Ég fékk sundurliðun á launum fyrrum forstjóra Félagsbústaðar á fundi borgarráðs í gær. Hann var með rúma 1.6 milljón á mánuði auk yfirvinnutíma. Þessi laun eru á pari við laun borgarstjóra. Við starfslok var gert upp við hann, hann fékk orlof greitt sem er hefðbundið en einnig 128 yfirvinnutíma greidda. Það angrar mig mjög að forstjóri þessa fyrirtækis og eflaust annarra B hluta fyrirtækja borgarinnar eru á borgarstjóralaunum,“ segir Katrín Baldursdóttir Flokki fólksins.


„Bókun mín í þessu máli segir allt sem segja þarf:

Laun fráfarandi forstjóra Félagsbústaða eru regin hneyksli. Forstjórinn var með rúmar 1,6 m.kr á mánuði. Borgarfulltrúi Flokks fólksins er orðlaus yfir þessari upphæð sem sennilega er á pari við sjálfan borgarstjórann. Fram kemur í svari að viðkomandi átti um 2 mánuði ógreitt orlof og ógreidda yfirvinnutíma. Upplýst hefur verið með yfirvinnu. Við starfslok voru greiddir út 128 tímar í yfirvinnu á tímabilinu 2017 til 2018 samtals 1.961.023. Þetta var ofan á föst laun. Flokkur fólksins gerir skilyrðislausa kröfu til stjórnar að laun núverandi forstjóra verði lækkuð séu þau í einhverju samræmi við þessa upphæð. Laun viðkomandi sem sinnir þessu starfi þarf að vera í einhverju samræmi við þann veruleika sem við lifum í. Hér er um firringu að ræða sem æ oftar virðist vera raunin hjá meirihluta borgarstjórnar og fyrirtækjum í eigu borgarbúa þegar sýslað er með skattfé borgarbúa. Einhver meðvirkni virðist vera í þessu máli.“

Þú gætir haft áhuga á þessum

Tengdar fréttir sem þú gætir haft áhuga á að lesa: