Alþingi:
„Ég tel að við ættum að nota fánann oftar og meira. Ég tel sömuleiðis að setja eigi opinberum aðilum ákveðnari reglur en gilt hafa til þessa um notkun þjóðfánans. Af því tilefni hef ég lagt fram það frumvarp sem ég mæli hér fyrir þar sem kveðið er á um að einungis skuli flagga íslenska þjóðfánanum við byggingar í eigu ríkisins með fáeinum undantekningum, svo sem á þjóðhátíðardögum vinaþjóða okkar og í tilefni af opinberum heimsóknum fulltrúa þeirra ríkja,“ sagði Karl Gauti Hjaltason Miðflokki, þegar hann mælti fyrir frumvarpi um þjóðfána Íslendinga og ríkisskajldarmerkið.
„Fánadagar og fánatími er ákveðinn í reglugerð þannig að þetta frumvarp fjallar ekki um það. Það er í höndum hæstvirts forsætisráðherra að breyta því en borið hefur á umræðu um það undanfarnar vikur að lengja eigi þann tíma sem fólk geti haft fánann okkar á lofti, sérstaklega á sumrin þegar bjart er, og tekið skal undir það hér í þessari ræðu að það er fyllilega eðlilegt að skoða það,“ sagði þingmaðurinn.
Með þessari frétt eru tvær myndir teknar við Ráðhús Reykjavíkur. Þessar fánaborgin fóru fyrir brjóstið á mörgum. Greinilegt er að Karl Gauti er þeirra á meðal.