Alþingi: Grétar Mar Jónsson sagði í þingræðu fyrr í dag:
„Mér finnst tilefni til þess, eins og oft áður, að ræða um sjávarútvegsmál og það er náttúrlega af nógu að taka þar. Það er í fyrsta lagi fiskveiðistjórnarkerfið sjálft, í öðru lagi verðlagning á fiski upp úr sjó á Íslandi. Síðan er náttúrlega líka hægt að tala mikið um vinnubrögð Hafrannsóknastofnunar.
En ég ætla að tala hér um verðlagningu á fiski og nauðsyn þess að markaðsvæða fiskverð betur en við höfum gert í gegnum tíðina. Það er sorglegt að horfa upp á það, þegar við erum að veiða makríl úr sömu torfunni og Norðmenn og Færeyingar, að þeir fái tvisvar, þrisvar sinnum hærra verð fyrir afurðirnar sem landað er í Færeyjum eða Noregi en við fáum hér á Íslandi. Það er sorglegt og mikið tap fyrir sveitarfélög sem eru með vinnslur og hafnargjöld, fyrir allar sjávarbyggðir.
Síðan á það sama við í sambandi við síld, kolmunna og loðnu og í bolfiskinum erum við að borga í föstum viðskiptum 350 kr., 380 kr. kannski, per kíló af þorski. En þegar hann er settur á fiskmarkað þá fást fyrir hann 700–750 kr. Þetta er eitthvað sem við verðum að laga.“