- Advertisement -

Ólög sett í þágu Samherja

Það er tímabært að Katrín Jakobsdóttir hætti þessum leikaraskap.

Sigurjón Þórðarson skrifar:

Ólögin um kvótasetningu á makríl sem eru samin í þágu Samherja af fyrrum stjórnarformanni Samherja, eru með ólíkindum. Fyrir utan það að nokkrir auðmenn fái endurgjaldslausan einokunarrétt til að nýta makrílinn sem er nýkominn inn í efnahagslögsögu þjóðarinnar, þá hefur framganga Kristjáns Þórs mögulega bakað þjóðinni skaðabótagreiðslu til örfárra auðmannanna.

Miðað við hvernig forsaga málsins hefur verið þ.e. að hagsmunir Samherja og nokkurra annarra, hafa verið settir í forgang á kostnað þjóðarinnar og smábátasjómanna, þá verður að telja afar líklegt að Árni Kolbeinsson verði kallaður inn í Hæstarétt, rétt eins og hann var fenginn hér um árið þegar hann dæmdi í makrílmálinu, sem umdeild lagasetning byggir að hluta til á.

Þú gætir haft áhuga á þessum

…í stað þess að hossa nokkrum auðmönnum.

Hann var þá bullandi vanhæfur m.a. vegna þess að sonur hans í forsvari fyrir umræddar útgerðir sem stefndu ríkinu.

Það er tímabært að Katrín Jakobsdóttir hætti þessum leikaraskap að skipa starfshópa um að efla traust á stjórnmálum og búa til einhverjar málamynda reglur atvinnuleit fyrrverandi ráðherra ofl.

Ef hún og þingmenn vilja raunverulega skapa traust, þá er rétt að taka upp þessi ólög um úthlutun á makrílnum með það að markmiði að landsmenn standi jafnir að nýtingu hans í stað þess að hossa nokkrum auðmönnum.


Tengdar fréttir sem þú gætir haft áhuga á að lesa: