- Advertisement -

Pompeo er senditík afturhaldssamra heimsvaldasinna

Þessi gaur var að lofa íslenskum fyrirtækjum allskonar gotteríi.

Gunnar Smári skrifar:

Þessi gaur var í fréttunum í kvöld að lofa íslenskum fyrirtækjum allskonar gotteríi ef stjórnvöld hér myndu styðja yfirgang Trumpstjórnarinnar víða um heim.

Utanríkisráðherrann okkar flaðraði upp manninn eins og hann væri baðaður upp úr fitu. Mike Pompeo er senditík afturhaldssamra heimsvaldasinna meðal bandarískra auðkýfinga, sannfærður andstæðingur fóstureyðinga og hjónabanda samkynhneigðra, andsnúinn heilbrigðiskerfi fyrir alla og öðru félagslegu réttlæti, er fylgismaður þess að létta sköttum af hinum ríku, létta eftirliti og kvöðum af fyrirtækjum og einkavæða alla almannaþjónustu, vill brjóta samfélagið undir vald hinna ríku, styður ofbeldi Ísraelstjórnar gegn Palestínumönnum, einræði konungsfjölskyldunnar í Saudi Arabíu og leið Erdogan og annarra öfgahægrimanna í átt að fasisma, er talsmaður innrásar bandríkjahers í Íran og Venesúela og viðskiptabanns á Kúbu og Nikaragúa, fylgjandi njósnum innanlands og pyntingum utanlands og er á allan máta hreint andstyggilegur stjórnmálamaður, fulltrúi þess allra versta í bandarísku samfélagi; fulltrúi andmannúðar og haturs.

Þú gætir haft áhuga á þessum

Það er sérstök þjóðarvá að sitja uppi með utanríkisráðherra sem smjaðrar fyrir jafn skaðlegum manni, það veit ekki á neitt gott, er fyrirboði þess að við verðum gerð meðsek í þeim glæpum sem Pompeo og hans samverkamenn eru að undirbúa.


Tengdar fréttir sem þú gætir haft áhuga á að lesa: