- Advertisement -

Ráðherra virðist ekki hafa kynnt sér skýrsluna

Alþingi:

Ingibjörg Isaksen Framsóknarflokki sagði eftirfarandi varðandi nýja samgönguáætlun:

„Í gær, í óundirbúnum fyrirspurnum, kom hæstvirtur forsætisráðherra hér upp og fullyrti að það hefði verið haft faglegt mat þegar var verið að ræða og niðurstaða komst í forgangsröðun jarðgangakosta í samgönguáætlun. Það sem er hins vegar að koma í ljós mjög skýrt núna er að allar forsendur fyrir þessu faglega mati eru brostnar. Ráðherra virðist ekki hafa kynnt sér skýrsluna sem hann vísar til og byggir sitt faglega mat á, auk þess sem skýrsluhöfundar hafa bent á að skilningur ráðherrans sé allt annar heldur en skýrsluhöfunda sjálfra. Í ljósi þessa virðast vera algerlega brostnar forsendur hvað varðar samgönguáætlun. Það væri ágætt, og ég vil beina því til hæstvirts forseta, að fá hæstvirtan forsætisráðherra og innviðaráðherra til að útskýra fyrir þingheimi hvernig þær faglegu forsendur voru fengnar og kannski líka útskýra fyrir fólkinu á Austurlandi, af því að þetta er engin smá ákvörðun að taka, á hverju þau byggja þessa ákvörðun sína. Það væri mjög gott og svo gætum við líka rætt samgönguáætlun í framhaldinu.


Tengdar fréttir sem þú gætir haft áhuga á að lesa: