- Advertisement -

Ráðherrann regluverkið og leiðarljósið

Eitt af helgarverkunum er að lesa pistla Þórdísar Kolbrúnar R. Gylfadóttur ráðherra og varaformanns Sjálfstæðisflokksins. Að þessu sinni amast ráðherrann ögn út í „regluverkið“.

„Það er raunar almennt áhyggjuefni hve við Íslendingar virðumst gjarnir á að flækja hlutina í hnútum regluverks og óskilvirkrar málsmeðferðar. Og það er dálítið einkennileg tilhneiging hjá þjóð sem oft er bendluð við kæruleysi, skjótar „reddingar“ og óþol gagnvart flækjum.“

Þetta er Valhallarlegt. Í grein sinni opinberar ráðherrann svo hvert hennar pólitíska leiðarljós er:

„Leiðarljós mitt í stjórnmálum er að stuðla að þessu; að Ísland sé land tækifæranna frá sjónarhóli bæði einstaklinga og fyrirtækja. Það eru forréttindi að fá að beita sér fyrir þessu.“

-sme


Tengdar fréttir sem þú gætir haft áhuga á að lesa: