- Advertisement -

Reykjavíkurborg stendur best allra sveitarfélaga á höfðuborgarsvæðinu

Allar lykiltölur um fjármálalegt heilbrigði sýna stöðu Reykjavíkur vera betur rekna en önnur sveitarfélög á höfuðborgarsvæðinu, sem flestum er stýrt af Sjálfstæðisflokknum.

Í nýjasta Kratanum, fjölmiðli Samfylkingarinnar, segir meðal annars:

„Ein lygi sem hefur verið endurtekin í sífellu, í von um að endurtekningin ein geri hana að sannleika, er sú að fjármál Reykjavíkur séu í köldum kolum. Að borgin sé nánast á barmi gjaldþrots og það þurfi bláar hendur til að bjarga henni frá glötun.

Staðreyndir málsins sýna hins vegar allt aðra mynd. Allar lykiltölur um fjármálalegt heilbrigði sýna stöðu Reykjavíkur vera betur rekna en önnur sveitarfélög á höfuðborgarsvæðinu, sem flestum er stýrt af Sjálfstæðisflokknum, með lægra skuldahlutfall, betra veltufjárhlutfall, meira veltufé frá rekstri og lægri skuldir á hvern íbúa. Í fyrra hagnaðist borgin um fimm milljarða króna, sem var langt umfram áætlun.

Samkvæmt nýlega birtu hálfsársuppgjöri er staðan áfram góð.

Þessum árangri var náð án þess að hækka nokkra skatta í Reykjavík og þrátt fyrir að Reykjavík sinni félagslegri þjónustu langt umfram önnur sveitarfélög á landinu, með tilheyrandi kostnaði.

Samkvæmt nýlega birtu hálfsársuppgjöri er staðan áfram góð. Veltufé frá rekstri er á betri stað en fyrir ári og rekstur A-hluta borgarinnar, þess hluta sem er rekinn fyrir skattfé, er í fínu jafnvægi. Skuldir á íbúa eru áfram sem áður mun lægri en í öllum öðrum sveitarfélögum á höfuðborgarsvæðinu, að Kópavogi undanskildum.

Þetta er staðan á sama tíma og önnur stór sveitarfélög á svæðinu eru töluvert frá áætlunum sínum. Hafnarfjörður tapaði til að mynda 1,2 milljarði króna á fyrstu sex mánuðum ársins, Garðabær hagnaðist um tólf milljónir króna þegar áætlanir gerðu ráð fyrir 258 milljón króna hagnaði og hagnaður Kópavogs er fyrst og síðast tilkominn vegna þess að lóðagjöld upp á 1,3 milljarða króna voru tekjufærð.“

Hér er fast skorið og víst er að fyrirsvarsfólk hinna sveitarfélganna á höfðuborgarsvæðinu geta ekki látið þetta óhreyft.


Tengdar fréttir sem þú gætir haft áhuga á að lesa: