En útgjaldaloforðin eru slík að gott bú og mikill meðbyr dugir ekki til.
Guðríun Hafsteinsdóttir.
Stjórnmál:
Guðrún Hafsteinsdsóttir skrifaði:
Ríkisstjórn Kristrúnar Frostadóttur er skattahækkunarstjórn
Sjálfstæðisflokkurinn leggur til aðra leið.
Í fyrsta fjárlagafrumvarpi ríkisstjórnarinnar eru skattar hækkaðir um rúma 27 milljarða, á sama tíma hækka ríkisútgjöld um 143 milljarða og skuldir halda áfram að vaxa. Þetta bitnar á heimilunum og fyrirtækjunum í landinu.
Ríkisstjórnin tók við mjög góðu búi, hallalaus fjárlög voru í sjónmáli, skuldir ríkissjóðs lágar í alþjóðlegum samanburði, lánshæfismat Íslands sterkt, vanskil heimilanna lítil og lífeyriskerfið eitt það öflugasta í Evrópu þrátt fyrir áföll á borð við heimsfaraldur, náttúruhamfarir og fall WOW air. Í ofanálag hefur ríkissjóður fengið tugmilljarða í óvæntar tekjur umfram áætlanir þökk sé kraftmiklum efnahagsumsvifum, um 80 milljarða. En útgjaldaloforðin eru slík að gott bú og mikill meðbyr dugir ekki til. Ráðist er í skattahækkanir á kostnað fólksins í landinu til að standa undir óábyrgum útgjaldaloforðum.
Boðaðar skattahækkanir bitna einna helst á venjulegu fólki í landinu. Afnám samsköttunar hjóna og sambúðarfólks er árás á fjölskyldur, ekki réttlætismál. Hærri vörugjöld á bíla og kílómetragjöld leggjast þungt á fólk sem þarf á bíl að halda og hefur hvað minnst milli handanna. Hærri veiðigjöld bitna á sjávarbyggðum um allt land. Lægra frítekjumark leigutekna hækkar leiguverð og þrengir enn frekar að ungu fólki sem er að reyna að komast inn á húsnæðismarkað.
Fyrir kosningar lofuðu bæði formaður Samfylkingarinnar og formaður Viðreisnar að hækka ekki skatta á venjulegt fólk. Nú hefur ríkisstjórnin gert nákvæmlega það.
Sjálfstæðisflokkurinn leggur til aðra leið. Við viljum hagræða í rekstri ríkisins, verja heimilin og fyrirtækin, lækka skatta og nýta góðan efnahagslegan grunn til að byggja upp stöðugleika í stað þess að senda reikninginn sífellt á næstu kynslóðir. Þessar áherslur endurspeglast í breytingartillögum Sjálfstæðisflokksins við fjárlagafrumvarp ríkisstjórnarinnar.
Skiljum meira eftir í vasa fólksins og gefum atvinnulífinu svigrúm til vaxtar.