- Advertisement -

Ritstjórinn opinberar fyrirlitningu sína

Og ekkert er til sparað, allra síst rangindin.

Sigurjón M. Egilsson skrifar:

Fyrirlitning ritstjóra Moggans í garð þess fólks sem í dag leiðir helstu verkalýðsfélög landsins er stórmerkileg. Ekki síst í ljósi þess að verið er að reyna að laga það sem miður fór í valdatíð þessa sama manns, Davíðs Oddssonar.

Þú gætir haft áhuga á þessum

„Fólkið, sem náði und­ir sig risa­fé­lög­um með 8-17% fylgi, seg­ir nú að raun­hæft sé að laun allra al­mennra launa­manna hækki um 60% næstu þrjú árin eða um 50% um­fram verðbólgu!“

Enn og aftur nota andstæðingar launafólks, hin svokölluðu „fyrirmenni“, að gera lítið úr nýrri forystu, nýrri kynslóð, helstu verkalýðsfélaga landsins. Og ekkert er til sparað, allra síst rangindin.

„Á hinn bóg­inn má viður­kenna að rík­is­stjórn­inni var vandi á hönd­um. Hún hef­ur sjálfsagt vitað eins og flest­ir aðrir að það lið, sem hef­ur stuðnings­lítið kom­ist yfir mikið vald í verka­lýðshreyf­ing­unni, hafi aldrei ætlað sér að gera kjara­samn­inga núna án þess að fá að vinna þau skemmd­ar­verk sem hug­ur þeirra stend­ur til.“

Pælið í þessum orðum. Hvet er maðurinn að fara og hvað meinar hann? Má vera að hann trúi að yngra fólki en hann, og vitrara, gangi það eitt til að skaða samfélagið, í stað þess að vilja breyta því til betri og sanngjarnari vegar?

Ritstjórinn hefur enn horn í síðu núverandi formanns flokksins, sem honum þykir sér mun síðri stjórnandi:

„Það vakti veru­lega undr­un að rík­is­stjórn­in skyldi „spila út“ sínu „til­boði“ á þess­ari stundu og án staðfastr­ar vitn­eskju um að það sem hún byði, sem margt orkaði tví­mæl­is, yrði viður­kennt sem al­gjör loka­punkt­ur máls­ins.“


Auglýsing

Tengdar fréttir sem þú gætir haft áhuga á að lesa: