Borgarstjórn: Sanna Magdalena Mörtudóttir, forseti borgarstjórnar skrifaði:
„Góð grein! Auðvitað á borgin að byggja sjálf. Þetta hefur verið mér mikið hugðarefni síðustu árin í borgarstjórn og því sérstaklega ánægjulegt að lesa umsögn borgarlögmanns þar sem fram kemur að ekkert sé „lagalega því til fyrirstöðu að Reykjavíkurborg standi sjálf að uppbyggingu félagslegs leiguhúsnæðis.“ Umsögnin fjallar um ýmsa þætti sem þarf að hafa í huga í þessum málefnum en það er virkilega ánægjulegt að fá þessa staðfestingu. Umsögnin var lögð fram á borgarráðsfundi 5. febrúar.“
